Hrafnaklettur 4

310 Borgarnes

Ásett verð: 35.000.000 kr.

Hrafnaklettur 4
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
66,1 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
1989
Fermetraverð
529.501 kr.

Lýsing

Nes fasteignasala ehf kynnir eignina:

Hrafnaklettur 4, íb. 202, 310 Borgarnes.

Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning!

Um er að ræða 2ja herbergja íbúð á 2 hæð í þriggja hæða fjölbýlishúsi, byggt 1989. Íbúðin er 66.1 fm að stærð að meðtalinni sérgeymslu á geymslugangi í kjallara, skv. skráningu HMS. Rúmgóðar 7,8 fm SV svalir.

Sérmerkt bílastæði næst húsinu fylgir íbúðinni. Sameiginlegt þvottahús og vagna- og hjólageymsla er í kjallara.

Íbúðin skiptist í forstofu/hol, eldhús með borðkrók, stofu/borðstofu, svefnherbergi og baðherbergi. Nýlegt plastparket er á öllum gólfum íbúðarinnar fyrir utan baðherbergi, þar eru flísar.

Nánari lýsing:

Forstofa: Opið rými með innbyggðum hvítum fataskáp.

Eldhús: Góð hvít innrétting með rúmu skápaplássi, eldhúskrókur.

Stofa: Björt og rúmgóð með fallegu útsýni. Gengið er út á svalir.

Svefnherbergi: Innbyggður fataskápur.

Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, hvít innrétting og walk-in sturta. Tengi fyrir þvottavél.

Geymsla: Rúmgóð með glugga, málað gólf.

Sameign/anddyri: Flísar á gólfum, teppalagur stigagangu, þvottahús og vagna/hjólageymsla

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.