Kuggavogur 4

104 Reykjavík

Ásett verð: 80.000.000 kr.

Kuggavogur 4
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
92,5 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2023
Fermetraverð
864.865 kr.

Lýsing

Glæsileg íbúð við Kuggavog 4 í Vogabyggð, 104 Reykjavík. Um er að ræða glæsilega 3ja herbergja íbúð í lyftuhúsi og fylgir bílastæði íbúðinni og er það ekki inn í fermetratölu. Innangengt er úr bílakjallara í lyftu- og stigahús. Sér geymsla er í kjallara.

Bókið skoðun hjá: Ásmundur Skeggjason asi@hofdi.is, Gsm 895 3000 .

Skoðaðu 3 D mynidr af eigninni hér

Húsið er steinsteypt og útveggir einangraðir að utan, klæddir með báru-álklæðningum eða sléttum-álklæðningum sem tryggir lágmarks viðhald hússins. Gluggar eru ál/tré kerfi og glerjaðir með K-gleri. Innveggir aðrir en steyptir eru úr hleðslusteini.

Íbúð 205 : Er 92,5 fermetra þriggja herbergja íbúð á annarri hæð með svölum til suðurs. Þar af er geymsla 10,6 fermetrar og bílastæði í bílakjallara að auki. Afhending getur verið fljótlega ef vill.

Nánari lýsing: Íbúðin skiptist í anddyri/forstofu, eldhús með eyju sem er opið inn í rúmgott alrými/stofu, 2 svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Útgengi á svalir til suðurs úr stofu.

Vogabyggð er skjólsæl perla á höfuðborgarsvæðinu í nálægð við hafið og náttúruna. Frábær kostur fyrir þá sem kjósa að búa í umhverfi sem býður bæði upp á borgarbrag og í senn sterka tengingu við náttúruna. Hjóla- og göngustígar liggja meðfram ströndinni sem og upp í Elliðaárdal. Þá er Laugardalurinn innan seilingar.

Innréttingar : Í eldhúsi og baðherbergi eru innréttingar frá þýska framleiðandanum Nobilia og fataskápar frá GKS smíðaverkstæði. Lýsing undir efri skápum í eldhúsum. Speglaskápar eru á aðalbaðherbergjum.

Eldhústæki: Vönduð eldhústæki af gerðinni AEG. Span helluborð, innbyggður kæliskápur, innbyggð uppþvottavél, blástursofn og vifta.

Hreinlætistæki: Salernisskál er vegghengd með innbyggðum vatnskassa. Sturta eru með flísalögðum botni og hertu sturtugleri. Hreinlætistæki eru frá Grohe, hitastýrð eða einnar handar. Þvottahús er í sér rými.

Hringdu núna og bókaðu tíma hjá Ásmundi Skeggjasyni asi@hofdi.is, Gsm 895 3000.-