Klettahraun 10

220 Hafnarfjörður

Ásett verð: 199.500.000 kr.

Klettahraun 10
Tegund
Einbýlishús
Stærð
315,3 m²
Herbergi
7
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
1
Byggingarár
1965
Fermetraverð
632.731 kr.

Lýsing

Aðalsteinn Jón Bergdal lgf. og Trausti fasteignasala kynna í einkasölu glæsilegt 2ja hæða einbýlishús með 2ja hæða bílskúr á einkar eftirsóttum stað miðsvæðis í Hafnarfirði að Klettahrauni 10. Húsinu hefur verið vel við haldið alla tíð. Stór, gróin og fallegur ævintýragarður og skemmtileg lóð.

Bókið einkaskoðun hjá Aðalsteini á netfanginu alli@trausti.is

Smelltu hér til að sækja söluyfirlit - Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign.

Eignin er skráð samkvæmt HMS 315,3 fm og þar af er bílskúr skráður 34,8 fm.

2 stofur, 5 svefnherbergi, eldhús, baðherbergi, gestasalerni, 2ja hæða bílskúr og þvottahús.

Nánari lýsing:

Efri hæð:

Forstofa er rúmgóð með flísar og náttúrustein á gólfi.

Gestasalerni við forstofu flísalagt í hólf og gólf með upphengt salerni.

Hol með náttúrustein á gólfi.

Stofa og borðstofa mjög rúmgóð og björt með frábært útsýni.

Eldhús er stórt með góðri innréttingu, innbyggðan ísskáp og uppþvottavél. Steinn á borðum og gott pláss til að sitja við. Þrískipt helluborð með 3 gashellur og 2 span. Útgengt á bílastæði við gönguhurðir í bílskúr.

3 svefnherbergi á hæðinni og eru öll mjög rúmgóð. Útgengt í garð úr einu herbergjanna.

Baðherbergi með góða innréttingu, náttúrstein og flísar á gólfi og flísar á vegg að stærstum hluta. Bæði góð "walk-in" sturta og baðkar, upphengt salerni, handklæðaofn og gluggi.

Timburstigi niður á neðri hæð . Ekki full lofthæð á neðri hæð.

Gangur með flísar á gólfi og skemmtilega gólflýsingu.

Stofa/sjónvarpsstofa er mjög rúmgóð með parket og teppi á gólfi. Útgengt í garð.

2 svefnherbergi eru á hæðinni og eru bæði mjög rúmgóð með parket á gólfi.

Innangengt á neðri hæð bílskúrs með steyptu gólfi. Útgengt í garð.

Þvottahús til hliðar við bílskúr og þar er gott vinnupláss, skolvaskur og flísar á gólfi.

Bílskúr efri hæð er rúmgóður með kalt rennandi vatn, rafmagn og hitaveitu.

Fallegt fjölskylduhús á frábærum stað í Hafnarfirði. Miðbær og hjarta Hafnarfjarðar í göngufæri og stutt í bæði leik-, grunn- og menntaskóla sem og alla helstu þjónustu.

Nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is.