Bjarnastaðir sv-2 3

320 Reykholt í Borgarfirði

Ásett verð: 27.000.000 kr.

Bjarnastaðir sv-2 3
Tegund
Sumarhús
Stærð
57 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1989
Fermetraverð
473.684 kr.

Lýsing

Nes fasteignasala kynnir eignina:

Bjarnastaðir sv-2, 3, 320 Reykholt.

Um er að ræða 57.0 fm sumarhús byggt 1994 sem stendur á 3.260 fm leigulóð í landi Bjarnastaða. Húsið er úr timbri og klætt standandi timburklæðningu að utan. Húsið er kynt með hitaveitu á svæðinu.

Nánari lýsing:

Húsið skiptist í forstofu, baðherbergi, 2 herbergi og alrými sem samanstendur af stofu/borðstofu og eldhúsi. Gengt út á sólpall úr stofu.

Húsið er innréttað með panelklæðningu á veggjum og í lofti en pressaðar spónaplötur eru á gólfi. Lítil og góð innrétting er í eldhúskrók með helluborði og ískáp sem fylgir. Baðherbergi er með lítilli innréttingu og sturtuklefa. Loft eru upptekin yfir stofu en svefnloft yfir hinum hluta hússins.

Sólpallur er með öllum hliðum hússins og þar er viðbyggð geymsla og heitur pottur. Öll áhöld í geymslu þar með talinn sláttutraktor fylgja með við sölu.

Lóðin er í góðri rækt. Stór grasflöt frá vegi að húsi og tré á lóðamörkum. Einnig margvíslegur annar gróður, tré runnar o.fl í hinum hluta lóðarinnar

Sumarhúsabyggðin að Bjarnastöðum er í vinsælu og grónu sumarhúsahverfi skammt frá Húsafelli.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.

Kostnaður kaupanda:

Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald kr. 3.800,- á hvert skjal.

Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.

Engin umsýsluþóknun.