Nesflói 1 - 102

300 Akranes

Ásett verð: 69.700.000 kr.

Nesflói 1 - 102
Tegund
Atvinnuhúsnæði
Stærð
169,4 m²
Herbergi
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
1
Byggingarár
2024
Fermetraverð
411.452 kr.

Lýsing

Til sölu atvinnuhúsnæði við Nesflóa 1 , Akranesi.

Um er að ræða 169,4 fm atvinnurými (séreign 102 ) í nýlegu atvinnuhúsi í Grænum iðngörðum á Akranesi.

Húsið er byggt á steyptum grunni með stálburðarvirki og ytra byrði úr yleiningum. Rýmið er hluti af húsi sem samanstendur af 7 séreignarhlutum og sameign með inntaksrými.

Innra skipulag og frágangur:

Milliloft er fullbúið með snyrtingu, parketlögðu gólfi og eldhúsinnréttingu. Háir gluggar í þakbroti veita góða dagsbirtu.

Lóð og aðkoma:

Lóð er fullfrágengin og malbikuð. Svæðið er afgirt með girðingu og símastýrðu hliði. Merkt og upphituð bílastæði eru fyrir framan húsið. Aðgangsstýringar, lyklalaust aðgengi og öryggismyndavélar eru til staðar.

Leigustaða:

Rýmið er í útleigu. Leigutekjur eru mjög góðar. Sala miðast við að kaupandi taki við leigusamningi við afhendingu.

Skilalýsing frá seljanda

Húsið er byggt á einangruðum sökkli og botnplötu úr járnbentri steinsteypu. Útveggir eru úr stáli með yleiningum. Þak er fullfrágengið með 150 mm einangrun og þakdúk með UV-vörn. Þakniðurföll eru tengd fráveitu og blágrænum ofanvatnslausnum.

Milliloft er skilað fullbúnu með snyrtingu, parketlögðu gólfi og eldhúsinnréttingu. Lóð er malbikuð og afgirt. Rafstýrt og símastýrt hlið er inn á lóð og gönguhurð fyrir gangandi.

Gjöld og skilmálar

Seljandi greiðir öll lóðargjöld til bæjarins og heimæðagjöld vegna vatns og rafmagns. Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á.

Áhvílandi er á eigninni virðisaukaskattskvöð og miðast sala við að kaupandi yfirtaki kvöðina.

Allar upplýsingar í söluyfirliti eru fengnar frá seljanda og úr opinberum gögnum.

Nánari upplýsingar veita:

Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is

Ómar Hjaltason astmf. S:778-9090 eða omar@palssonfasteignasala.is

[link]

[link]

Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.