Fossvogsvegur 8

108 Reykjavík

Ásett verð: 240.000.000 kr.

Fossvogsvegur 8
Tegund
Raðhús
Stærð
210,8 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Byggingarár
2025
Fermetraverð
1.138.520 kr.

Lýsing

FJÁRFESTING FASTEIGNASALA, SÍMI 562-4250, ER MEÐ TIL SÖLU GLÆSILEGA TVEGGJA HÆÐA ÍBÚÐ (HÁLFGERT RAÐHÚS) MEÐ VERÖND OG SVÖLUM VIÐ FOSSVOGSVEG 8-36 Í REYKJAVÍK.

Glæsileg og vel skipulögð 5 herbergja 2ja hæða íbúð með sérinngangi, í fallegu nýju álklæddu 15 íbúða fjölbýlishúsi.

Birt stærð íbúðar er skráð 210,8 fm. að stærð.

Góð verönd og rúmgóðar svalir.

Stæði í lokaðri bílageymslu fylgja þar sem er innangegnt beint inn í íbúð frá bílageymslu.

Fossvogsvegur 8-34 er nýtt 3ja hæða tengihús sem er í Fossvognum nánar tiltekið fyrir neðan Borgarspítalann á einstaklega veðursælum og fallegum stað.

Húsið er 3ja hæða. Fjórar sérhæðir (penthouse) eru á efstu hæðinni með stórum þaksvölum og sérlyftum. Ellefu tveggja hæða íbúðir (hálfgerð raðhús) eru á miðhæð og jarðhæð. Bílageymsla er einnig á jarðhæð en innangegnt er í íbúðirnar frá bílageymslu (alla nema eina íbúð). Samtals eru fimmtán íbúðir í húsinu.

Smelltu hér til að skoða söluvef fyrir Fossvogsveg [link]

Pantið skoðun hjá sölumönnum Fjárfestingar Fasteignasölu:

Óskar sími 822-8750 oskar@fjarfesting.is

Guðjón sími 846-1511 gudjon@fjarfsting.is

Hildur sími 661-0804 hildur@fjarfesting.is

Smári sími 864-1362 smari@fjarfesting.is

Edda sími 845-0425 edda@fjarfesting.is

Jónas sími 842-1520 jonas@fjarfesting.is

Nánari lýsing:

Komið er inn á efri hæð.

Efri hæð:

Komið er inn í forstofu með góðum fataskáp.

Eldhús með glæsilegri innréttingu frá Brúnás, borðplötum úr Virgo Quarts-steini og vönduðum eldhústækjum frá Ormsson.

Stofur með útgengi út á rúmgóðar svalir.

Tvö góð svefnherbergi með fataskápum.

Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, stórri sturtu með glerþili, innbyggðum vönduðum blöndunartækjum frá Tengi, og fallegri innréttingu frá Brúnás.

Hol þar sem er stigi er niður á neðri hæð.

Neðri hæð:

Komið er inn í hol með útgengi út á verönd (einnig hægt að nýta sem svefnherbergi)

Hjónasvíta með fataherbergi.

Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, stórri sturtu með glerþili, innbyggðum vönduðum blöndunartækjum frá Tengi, og fallegri innréttingu frá Brúnás.

Þvottahús með flísum á gólfi og innréttingu.

Sérgeymsla innaf þvottahúsi.

Innangegnt er í bílageymslu frá geymslu.

Stæði í bílageymslunni fylgir

Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í kjallara.

Frekari upplýsingar má finna í skilalýsingu Byggingarfélags Gylfa og Gunnars hf., sem má nálgast hjá fasteignasala.

Áætlað er að íbúðirnar verði afhentar í febrúar 2026.

Kostnaður kaupanda:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila, en 0,4% við fyrstu kaup einstaklinga.

2. Þinglýsingar af hverju skjali er 3800 kr.

3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar.

4. Umsýsluþóknun skv. gjaldskrá fasteignasölu.