Seljalandsvegur 12
400 Ísafjörður
Ásett verð: 42.000.000 kr.

- Tegund
- Einbýlishús
- Stærð
- 145,1 m²
- Herbergi
- 5
- Svefnherbergi
- 4
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 1928
- Fermetraverð
- 289.456 kr.
Lýsing
Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - [link] kynnir til sölu - Seljalandsvegur 12 Ísafirði - Parhús á þremur hæðum, í húsinu eru fjögur herbergi, stofa, eldhús og baðherbergi, í kjallara eru þrjár geymslur og þvottahús.
Húsið var einangrað og klætt að utanverðu árið 2021, einnig var þá skipt um alla glugga í húsinu, húsið drenað og grunnur klæddur. Eignin stendur á 289 fm eignarlóð skv. fasteignaskrá. Húsið var nefnt "Þórshamar" fyrr á tímum.
1.hæð:
Aðalinngangur og forstofa með fjölum á gólfi.
Herbergi með parketi á gólfi, nýtt sem vinnuherbergi í dag.
Eldhús með dúk á gólfi og færanlegri innréttingu og hillum.
Stofa og borðstofa með gólffjölum. Búið að setja upp svalahurð út í bakgarð fyrir mögulegan sólpall.
Hleri niður í kjallara og stigi upp á 2.hæð
2.hæð:
Gangur með dúk á gólfi, bókahilla og geymsluskápur.
Á hæðinni eru þrjú ágæt herbergi með parketi á gólfum, stór fataskápur í stærsta svefnherberginu,
Baðherbergi með dúk á gólfi, baðkar og innrétting.
Kjallari:
Kjallari skiptist í fjögur aðskilin rými.
Þrjár geymslur og þvottahús, möguleiki á að nýta einu geymslu sem herbergi.
Aðgengi með stiga upp í stofu úr kjallara í gegnum hlera.
Einnig er sérinngangur í kjallara undir útidyratröppum.
Framkvæmdasaga seljenda:
2013 - Baðherbergi endurnýjað. 2014 - Varmaskiptir settur upp
2021 - Húsið einangrað og klætt að utanverðu, drenlagnir lagðar og grunnur klæddur. Skipt um alla glugga í húsinu, frágang glugga að innanverðu á eftir að klára.
2022 - frárennslislagnir endurnýjaðar út í götu - nema frá þvottahúsi.