Lækjarhjalli 40

200 Kópavogur

Ásett verð: 149.900.000 kr.

Lækjarhjalli 40
Stærð
218,1 m²
Herbergi
6
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Byggingarár
1990
Fermetraverð
687.299 kr.

Lýsing

Bókið skoðun - Glódís Helgadóttir, löggiltur fasteignasali, s. 659-0510 , glodis@hraunhamar.is

Hraunhamar fasteignasala kynnir: Fallega, bjarta og rúmgóða fjögurra herbergja hæð í tvíbýlishúsi með bílskúr og aukaíbúð, einstaklega vel staðsett neðst í rólegri botnlangagötu niðri við Kópavogslækinn, steinsnar frá Kópavogsdal. Stutt í fallegar gönguleiðir og alla helstu þjónustu.

Eignin er skráð 218,1 fm í heildina skv. HMS. Þar af bílskúr skráður 31,6 fm og íbúðarhluti 186,4 fm.

- Auka tveggja herbergja íbúð með sérinngangi

- Þrjú góð svefnherbergi á aðalhæð

- Tvennar svalir í suðurátt

- Rúmgott alrými

Nánari lýsing eignar:

Aðalhæð: Sérinngangur.

Gengið inn í rúmgóða flísalagða forstofu með góðu skápaplássi. Hiti í gólfi.

Parketlagður stigi upp á efri hæð.

Bjart opið alrými með aukinni lofthæð. Stórir gluggar.

Eldhús með hvítri innréttingu, gott skápapláss. Flísar á gólfi.

Setkrókur/borðkrókur en þar er útgengt á rúmgóðar svalirnar sem snúa í suðurátt. Heitur pottur á svölum, svalahandrið og gott næði.

Borðstofa þar sem útgengt er á aðrar svalir sem fara meðfram húsinu til suðvesturs.

Rúmgóð stofa , fallegar franskar hurðir inn á svefnherbergisgang.

Virkilega rúmgott hjónaherbergi með góðu skápaplássi, skápar ná upp í loft. Aukin lofthæð. Útgengt þaðan í bakgarðinn.

Rúmgott barnaherbergi með góðu skápaplássi.

Barnaherbergi með fataskáp.

Mikið endurnýjað baðherbergi . Flísar á gólfum og á veggjum í sturtu. Innrétting með góðum skúffum, upphengt salerni og handklæðaofn. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi. Gluggi. Hiti í gólfi.

Geymsluskápur á svefnherbergisgangi.

Geymsluloft er yfir hluta efri hæðar.

Flísar og gegnheilt fiskibeinaparket á gólfi aðalhæðar.

Aukaíbúð:

Sérinngangur á austurhlið hússins, vel aðskilin frá aðalíbúð og garði.

Ný innrétting með vaski og litlum innbyggðum ísskáp.

Stofa og borðkrókur, parket á gólfi.

Svefnherbergi með fataskáp, parket á gólfi.

Baðherbergi með dumplastplötum á gólfi og á veggjum í sturtu. Tengi fyrir þvottavél á baðherberginu.

Hiti í gólfi í aukaíbúðinni.

Mögulegt er að opna á milli aðalhæðar og aukaíbúðar frá forstofu aðalhæðar ef vilji er fyrir því.

Bílskúr með flísum á gólfi. Bílskúr hefur verið breytt og er minni en uppgefnir fermetrar. Innst í bílskúrnum hefur verið sett upp baðherbergi sem er nú hluti af aukaíbúð.

Skv. seljanda hafa eftirfarandi framkvæmdir átt sér stað á árunum 2020-2026

Baðherbergi endurnýjað 2019

Hús málað að utan 2020

Ný svalahandrið 2021

Nýtt þak á sólskála (borðstofu) 2023

Skipt úr halógen í led í loftljósum efri hæðar 2025

Svalagólf máluð 2026

Þak málað 2026

Nýtt eldhús, baðherbergi og parket í aukaíbúð 2026

Gluggar yfirfarnir og gler endurnýjað eftir þörfum.

Falleg lóð, sameiginlegur garður í suðurátt. Sérgarður fyrir ofan hús.

Falleg eign sem vert er að skoða á þessum frábæra stað við Kópavogslækinn.

Nánari upplýsingar veitir Glódís Helgadóttir, löggiltur fasteignasali, s. 659-0510 , glodis@hraunhamar.is

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi

Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.

Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is

Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.