Selás 8

260 Reykjanesbær

Ásett verð: 176.900.000 kr.

Selás 8
Tegund
Einbýlishús
Stærð
311,200001525879 m²
Herbergi
6
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Byggingarár
2010
Fermetraverð
568.445 kr.

Lýsing

Allt fasteignasala kynnir í einkasölu: Glæsilegt 311,2 fm einbýlishús á vinsælum útsýnisstað í Reykjanesbæ, með tvöföldum bílskúr. Stórbrotið hafútsýni er frá eigninni sem er fallega innréttuð og vönduð.

Gengið er inn á efri hæð hússins frá götu. Þar er stórt opið alrými, eldhús hefur mikið skápapláss og stóra eyju, innrétting er hvít, rúmgóð borðsstofa og stofa í framhaldi með frábæru útsýni yfir hafið, gólfsíðir gluggar. Rúmgott svefnherbergi er á hæðinni sem hefur gólfsíða glugga og gott útsýni. Útgengt er út á sólpall um rennihurð frá eldhúsi, þar er heitur pottur. Baðherbergi er einnig með útgengt út á sólpallinn. Innangengt er úr forstofu inn í tvöfalldan bílskúr. Stórt bílaplan er að húsinu framanverðu með hitalögn.

Á neðri hæð eru 3 rúmgóð svefnherbergi, sjónvarpsstofa, vel innréttað þvottahús með útgengi og rúmgott baðherbergi.

Virkilega spennandi eign sem aðeins verður sýnd í einkaskoðunum

Seljendur skoða skipti á minni eign

BÓKIÐ SKOÐUN:

Halla Vilbergs, nemi til löggildingar fasteignasala í s: 772-7930 eða á halla@allt.is

Unnur Svava Sverrisdóttir lögg. fasteignasali á unnur@allt.is

Nánar um eignina:

* Gólfsíðir gluggar og fallegt útsýni

* Gegnheilt niðurlímt og vandað parket er á alrýmum og herbergjum

* Tvö fullbúin og fallega flísalögð baðherbergi, annað með baðkari og hitt með sturtu

* Fallegar hvítar innréttingar í eldhúsi, baðherbergjum og þvottahúsi, hvítir klæðaskápar

* 4 mjög rúmgóð svefnherbergi, mögulegt að bæta við fleirum

* Sólpallur í suður með heitum potti og útsýni

* Tvöfalldur bílskúr um 47,4 fm, geymsla er innaf skúr

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.

2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.

3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.

4. Lántökugjald lánastofnunar - sjá heimasíðu viðkomandi lánastofnunar.

5. Umsýslugjald til fasteignasölu 62.000 kr. m.vsk.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því Allt fasteignasala skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.