Austurgata 7

220 Hafnarfjörður

Ásett verð: 67.900.000 kr.

Austurgata 7
Tegund
Hæð
Stærð
81,9 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1918
Fermetraverð
829.060 kr.

Lýsing

Falleg og vel skipulögð 81,9 fm þriggja herbergja íbúð á efri hæð í tvíbýli með sérinngangi við Austurgötu 7 í Hafnarfirði. Eigninni fylgir útigeymsla auk geymslurýmis í risi.

Komið er inn í anddyri með dúk á gólfi og þaðan liggur stigi upp í íbúðina, með dúk á þrepum. Á efri hæð tekur við bjart hol/alrými með parketi á gólfi sem tengir saman önnur rými íbúðarinnar.

Stofan er rúmgóð með parketi á gólfi sem nýtur fallegs útsýnis. Eldhúsið er með parketi á gólfi og góðri innréttingu, ásamt viftu og tengi fyrir uppþvottavél.

Svefnherbergin eru tvö, bæði með parketi á gólfi, og í hjónaherberginu eru góðir fataskápar og útg. út svalir. Baðherbergið er með dúk á gólfi og flísaplötum á veggjum,gluggi og setbaðkar. Þvottahús með lakkað gólf.

Um er að ræða virkilega fallega eign með hagkvæmu skipulagi á eftirsóttum stað í miðbæ Hafnarfjarðar. Stutt er í alla helstu þjónustu, verslanir, veitingastaði og fjölbreytta afþreyingu, auk þess sem eignin státar af fallegu útsýni.

Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Svanur Sigfússon löggiltur fasteignasali í s. 862-3377 / eirikur@as.is

og Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.

[link]

[link]

[link]