Baugakór 19-23

203 Kópavogur

Ásett verð: 89.900.000 kr.

Baugakór 19-23
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
115,4 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
2005
Fermetraverð
779.029 kr.

Lýsing

Nýtt á skrá! Baugakór 19-23 Kópavogi - Glæsileg 4ra herb. fjölskylduíbúð (endaíbúð) með gluggum á þrjá vegu / Sérinngangur og sérstæði í bílakjallara.

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynna til sölu afar fallega og vel skipulagða 115,4 fermetra 4ra herbergja íbúð á 2. hæð með sérinngangi af svalagangi og góðum svölum til vesturs í fjölbýlishúsi við Baugakór 19-23 í Kópavogi. Sérstæði í bílakjallara fylgir íbúð ásamt 9,0 fermetra geymslu í kjallara. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í sameign.

Rúmgott alrými sem er opin stofa við eldhús og útgengi á rúmgóðar svalir til vesturs. Þrjú svefnherbergi. Fallegt baðherbergi og þvottaherbergi inn af íbúð.

Hellulögð stétt fyrir framan hús með snjóbræðslu og sameiginleg malbikuð bílastæði á framlóð. Búið er að koma upp rafhleðslustöðvum einnig á sameiginlegum bílastæðum fyrir framan hús. Fallegur tyrfður bakgarður með gróðri og sameiginlegum garðbekk.

Um er að ræða eftirsótta staðsetningu í góðu fjölskylduhverfi í Kórunum í Kópavogi. Frábært staðsetning í næsta nágrenni við Hörðuvallaskóla, Kórinn íþróttasvæði og verslun og þjónustu. Stutt í útivistarparadís með glæsilegum göngu- og hjólaleiðum sem liggja m.a. að Elliðavatni og inn í Heiðmörk.

Nánari lýsing:

Forstofa: Með flísum á gólfi og góðum skápum.

Gangur: Með harðparketi á gólfi.

Stofa: Er rúmgóð, með harðparketi á gólfi og gluggum til vesturs og norðurs. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu. Stofa er opin við eldhús og með útgengi á svalir.

Svalir: Eru rúmgóðar og snúa til suðvesturs inn í bakgarð hússins.

Eldhús: Var endurnýjað nýlega á glæsilegan máta. Harðparket á gólfi og vönduð eldhúsinnrétting með eyju frá GKS (Nobilia) með flísum á milli skápa. Innb. kæliskápur með frysti, innb. uppþvottavél, bakaraofn og stórt spansuðu helluborð. Lýsing undir efri skápum.

Baðherbergi: Með flísum á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtutækjum og glerþili, upphengt salerni, innrétting við vask með speglaskáp fyrir ofan og handklæðaofn

Þvottaherbergi: Með flísum á gólfi, innrétting (með hækkun) undir þvottavél og þurrkara. Gott skápapláss og vaskur.

Svefnherbergi I (hjónaherbergi): Er rúmgott, með harðparketi á gólfi, góðum skápum og gluggum til norðurs og austurs.

Svefnherbergi II: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til norðurs.

Svefnherbergi III: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til norðurs.

Bílastæði í lokuðu bílskýli: Merkt B16 í kjallara. Grunnkerfi fyrir rafhleðslu komið í bílakjallara.

Geymsla: Er staðsett á geymslugangi og er 9,0 fermetrar að stærð.

Hjóla og vagnageymsla: Málað gólf og gluggi. Útgengi beggja vegna á lóð. Snyrtileg með hjólasnögum.

Allar nánari upplýsingar veitir:

Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is