Rauðarárstígur 3
105 Reykjavík
Ásett verð: 64.900.000 kr.

- Tegund
- Íbúð í fjölbýli
- Stærð
- 77,3 m²
- Herbergi
- 3
- Svefnherbergi
- 2
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 1946
- Fermetraverð
- 839.586 kr.
Lýsing
Aðalsteinn Jón Bergdal lgf. og Trausti fasteignasal kynna í einkasölu fallega og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 1. hæð miðsvæðis í Reykjavík að Rauðarárstíg 3. 2016 var íbúðin nánast gerð fokheld, settir upp nýjir veggir, gólfefni endurnýjað, eldhús og baðherbergi endurnýjað. Á sama tíma voru allar lagnir endurnýjaðar og rafmagn að mestu. Íbúðin skiptist í forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, baðherbergi og 2 rúmgóð svefnherbergi. Eignin getur verið laus fljótt.
Gangstétt, gata og bílastæði fyrir framan húsið er upphitað með affalli húsa við götuna og hið sama á við um gangstétt í inngarði á bak við hús. Fjórar hleðslustöðvar eru fyrir framan húsið.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign.
Fyrirhugað fasteignamat 2027 er 63.750.000 kr.
Eignin er skráð samkv. HMS 77,3 fm og þar af er geymsla skráð 4,4 fm.
Nánari lýsing:
Forstofugangur með parket á gólfi.
Stofa/borðstofa er rúmgóð og björt með parket á gólfi.
Eldhús með góðri innréttingu, flísar milli skápa, ofn í vinnuhæð, tengi fyrir uppþvottavél og barborð sem hægt er að sitja við.
Svefnherbergi I er mjög rúmgott með góðri innréttingu og parket á gólfi.
Svefnherbergi II er mjög rúmgott með parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalegt í hólf og gólf með "walk-in" sturtu, handklæðaofn, upphengt salerni, góða innréttingu og glugga. Þegar allt var tekið i gegn 2016 var settur gólfhiti á baðherbergi.
Sérgeymsla íbúðar í sameign í kjallara hússins.
Sameiginlegt þvottahús, þar sem hver íbúð er með sitt tengi fyrir þvottavél og þurrkara, í sameign í kjallara.
Sjarmerandi og björt íbúð miðsvæðis í Reykjavík og stutt í alla þjónustu, leik- og grunnskóla. Svæðið kringum Hlemm, sem orðið er mjög skemmtilegt, og Klambratúnið í göngufæri og miðbær Reykjavíkur með öllu því skemmtilega sem hann hefur upp á að bjóða.
Nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is