Jöfursbás 9

112 Reykjavík

Ásett verð: 53.500.000 kr.

Jöfursbás 9
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
53,9 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
2024
Fermetraverð
992.579 kr.

Lýsing

Páll Konráð & LIND fasteignasala kynna Jöfursbás 9, 112 Reykjavík. Virkilega falleg 53,9 fm íbúð á jarðhæð í Grafarvoginum, með sérinngangi.

Nánari upplýsingar gefur Páll Konráð, Löggiltur fasteignasali, S:820-9322, pall@fastlind.is

Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu sem og borðstofu með útgang út á suð/vestur sérafnotareit. Svefnherbergi og baðherbergi með innréttingu fyrir þurrkara og þvottavél.

Nánari lýsing eignar:

Forstofa: Parket á gólfi.

Eldhús: Parket á gólfi með fallegri innréttingu og eldhústæki frá AEG. Gott skápapláss.

Stofa/borðstofa: Góð stofa sem og borðstofa með parket á gólfi. Útgangur út á suð/vestur sérafnotareit.

Svefnherbergi: Rúmgott svefnherbergi með góðum fataskáp. Parket á gólfi.

Baðherbergi: Fallegt baðherbergi með fallegri innréttingu. Tenging fyrir þvottavél og þurrkara. Upphengt salerni, handklæðaofn og sturtuklefi. Gólf og tveir veggir flísalagt.

Jöfursbás 9A skiptist í 4 hæðir með 14 íbúðum. Íbúðarhúsnæðið er steinsteypt að hluta til. Lyftuhúsið er steinsteypt en berandi innveggir og útveggir eru byggðir úr forsmíðuðum timbureiningum.

Gufunesið er nýjasta hverfi Reykjavíkur. Gufunes á að vera eins konar ventill fyrir ungt fólk sem kýs grósku og borgarbrag í stað úthverfa. Lögð verður áhersla á að nýta umhverfisgæði og staðaranda sem grunn að samfélagi þar sem tækifæri, hagkvæmni og upplifun verða í forgangi. Verð miðast við byggingavísitölu. Sjá heimasíðu verkefnis HÉR

Forgangur að eigninni eiga þeir sem eru á aldrinum 18-40 ára og fyrstu kaupendur.

Nánari upplýsingar gefur Páll Konráð, Löggiltur fasteignasali, S:820-9322, pall@fastlind.is

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lind fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.