Austurbrú 12 - 302

600 Akureyri

Ásett verð: 110.750.000 kr.

Austurbrú 12 - 302
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
206 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2024
Fermetraverð
537.621 kr.

Lýsing

Fasteignasalan Byggð 464-9955

Einstakar útsýnisíbúðir í hjarta Akureyrar. Staðsetningin býður íbúum við Austurbrú uppá einstök gæði. Íbúðirnar eru í nálægð við pollinn, miðbæinn og stóran hluta menningarstarfsemi Akureyrar.

**Íbúðin er laus til afhendingar við kaupsamning**

Fyrir ítarlegar upplýsingar, m.a. skilalýsingu smellið hér

***Bókaðu einkaskoðun í síma 464 9955 eða á byggd@byggd.is***

Íbúð 302

Þriggja herbergja rúmgóð íbúð með tvennum svölum á þriðju hæð í nýbyggingu ásamt stæði í lokaðri bílageymslu við Austurbrú 10.

Íbúðin er samtals 103 fm., þar af er geymsla 11,3 fm.

Íbúðin:

Komið er inn í opið anddyri með skáp. Opið eldhús , eldhúseyja með kvarts stein og span helluborði. Skúffur og skápar í eldhúsinu eru allar með ljúflokum. Eldhúsinnrétting með kvarts stein, bakaraofn í vinnuhæð, innfelldur vaskur. Allar skúffur og skápar með ljúflokum. Innfelld lýsing frá Lumex.

Fyrir framan eldhúseyjuna er stofa/borðstofa , útgengt út á skjólgóðar svalir til suðurs er úr borðstofu.

Hjónaherbergi með góðum skáp og þaðan er útgengt út á svalir til norðurs .

Barnaherbergi með skáp.

Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Sturta með glerskili. Falleg innrétting frá Parka, kvarts steinn á borðplötu. Upphengt salerni.

Þvottahús er með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara.

Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir íbúðinni.

Allar innréttingar, innihurðir, skápar og Electrolux eldhústæki eru frá Parka. Blöndunar- og hreinlætistæki eru frá Tengi.

Íbúðinni er skilað fullbúinni með gólfefnum.

Sameign er með glæsilegra móti.

Komið er inn í rúmgott anddyri. Stórar ljósakrónur og lýsing frá Lumex gefa fallega birtu.

Hljóðplötur í lofti, þannig að hlóðvist verður með besta móti.

Flísar á gólfi frá kjallara og upp á pall fyrstu hæðar. Frá fyrstu hæð eru stigagangarnir teppalagðir.

Innangengt úr hverjum stigagangi niður í lokaða bílageymslu.

Við Austurbrún 10-14 verða 35 íbúðir og eru þær allar með verönd eða svalir. Gluggarnir nema við gólf fyrir óhefta dagsbirtu og útsýni. Flestum íbúðunum fylgir einkastæði í bílakjallara og þar eru einnig hjólageymsla og geymslur. Lyftur eru í öllum stigahúsum og gott aðgengi fyrir hjólastóla og barnavagna.

Í kjallara eru geymslur íbúðanna auk 62 bílastæða í bílageymslu. Ísorka ehf. og Austurbrú 10-18 húsfélag hafa gert með sér samning með rekstur hleðslukerfis fyrir rafbíla á sameiginlegu bílastæði með hugbúnað Ísorku ehf.

Í heild er um að ræða 64 íbúðir að meðtöldum íbúðum úr húsum 16 og 18. Byggingarnar sem rísa Hafnarstrætis megin á reitnum munu hýsa glæsilegt hótel búið veitingastað og kokteilbar.

Allar frekari upplýsingar, verðlista og tegundir íbúða má sjá með því að smella hér

Áætluð afhending: Laus við kaupsamning

Framkvæmdaraðili: Pollurinn ehf.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut). Kaupandi greiðir skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati þegar það leggst á eignina.

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Frekari upplýsingar:

bjorn@byggd.is

greta@byggd.is

olafur@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.

S:464 9955