Veghús 31

112 Reykjavík

Ásett verð: 72.900.000 kr.

Veghús 31
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
114,2 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Byggingarár
1991
Fermetraverð
638.354 kr.

Lýsing

Rúmgóð og vel skipulögð fimm herbergja útsýnisíbúð á 8.hæð í lyftuhúsi við Veghús 31. Eign með glæsilegu útsýni og rúmgóðum svölum. Stæði í bílageymslu fylgir eigninni. Geymsla íbúðar er við inngagn íbúðar. Sér þvottahús er innan íbúðar. Eignin er laus við kaupsamning.

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 114,2 fm. og þar af 13,0 fm stæði í bílakjallara.

Fasteignamat fyrir árið 2027 verður 73.550.000kr.

Eignin skiptist í anddyri, eldhús, stofu og borðstofu í opnu rými, baðherbergi, þvottahús, hjónaherbergi, þrjú svefnherbergi og geymslu við hliðina á við inngang inn í íbúðina.

Nánari lýsing eignar:

Anddyri er rúmgott með innbyggðu fatahengi og parketi á gólfi.

Stofa björt með fallegu útsýni og með parketi á gólfi. Útgengt er út á rúmgóðar svalir úr stofunni. Stofa og eldhús í einu samliggjandi og opnu rými.

Eldhús með snyrtilegri innréttingu, helluborð, gufugleypir, ofn, tengi fyrir uppþvottavél, gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu og parket á gólfi.

Þvottahús er inn af eldhúsi með skolvask og flísum á gólfi.

Hjónaherbergi er rúmgott með fataskáp og parketi á gólfi.

Svefnherbergi II með fataskáp og parketi á gólfi.

Svefnherbergi III með nýlegu parketi á gólfi.

Svefnherbergi IIII með fataskáp og parket á gólfi. Í einhverjum íbúðum hefur það verið tekið niður og við það stækkað stofuna.

Baðherbergi með baðkari með sturtuaðstöðu, snyrtileg innrétting, flísar í kringum baðkar og á gólfi.

Geymsla við hliðina á við inngang í íbúðina með hillum.

Stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni. Þrifaðstaða fyrir bíla í bílageymslu og dekkjahótel.

Hjóla- og vagnageymsla er á jarðhæð.

Endurnýjanir:

2025: Nýjar lyftur, teppi endurnýjuð í sameign og hún máluð.

2016-2024:

- Nýr myndavéladyrasími.

- Lagt fyrir og settar upp tvær hleðstöðvar í sameign.

- Ný bílskúrshurð 2024.

Góð staðsetning í hinu gróna Húsahverfi, þar sem stutt er í skóla, leikskóla, golfvöll, kvikmyndahús, sundlaug, skíðabrekku, skautahöll, skemmtilegar gönguleiðir, verslun og ýmsa aðra þjónusta. Einnig er stutt út á helstu stofnbrautir.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is