Njálsgata 19
101 Reykjavík
Ásett verð: 74.900.000 kr.

- Tegund
- Íbúð í fjölbýli
- Stærð
- 71,6 m²
- Herbergi
- 2
- Svefnherbergi
- 1
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 2005
- Fermetraverð
- 1.046.089 kr.
Lýsing
Trausti fasteignasala og Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali kynna fallega tveggja herbergja 71,6 fm íbúð á fyrstu hæð með sérmerktu stæði í lokuðum bílakjallara í nýlegu húsi á Ölgerðarreit í miðbæ Reykjavíkur. Húsið var byggt árið 2005 og eru 14 íbúðir í húsinu. Fyrir aftan húsið er sameiginlegur stór og skjólgóður garður og er innkeyrsla í bílageymsluna frá Frakkastíg. Gott og öflugt húsfélag er í húsinu.
Íbúðin er skráð 71,6 fm hjá HMS og er geymslan 7,2 fm þar af.
Bóki skoðun hjá Hallgrími Hólmsteinssyni í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is
Nánari lýsing eignar:
Forstofan er með fataskáp og parket á gólfi.
Svefnherbergið er rúmgott með fataskáp og glugga sem snýr út í rólegan bakgarð. Parket á gólfi.
Stofan er björt með gluggum í suður út á Njálsgötu. Parket á gólfi.
Eldhús er með viðarinnréttingu og er opið að hluta inn í stofu. Eldhúsið er með glugga út í bakgarð. Parket á gólfi.
Baðherbergið er flísalagt með sturtu og upphengdu klósetti.
Sérgeymsla er í kjallara er 7,2 fm og auk þess sameiginleg hjóla og vagnageymsla.
Sameiginlegt þvottahús er á sömu hæð og íbúðin við hlið inngangsins.
Garðurinn er sameiginlegur fyrir öll húsin á Ölgerðarreitnum og er afar skjólgóður og fallegur.
Sérmerkt bílastæði í lokuðum bílakjallara fylgir íbúðinni.
Hér er gott tækifæri á að eignast fallega eign í nýlegu húsi í miðbæ Reykjavíkur. Verkefnið á Ölgerðarreit, Njálsgötu 19 var tilnefnt til íslensku byggingarlistaverðlaunanna 2007, en þar stendur:
„Hverfið næst gömlu Ölgerðarlóðinni á mörkum Frakkastígs og Njálsgötu í Reykjavík einkennist af ósamstæðum og marglitum húsum af öllum gerðum. Hin nýja íbúðaþyrping á reitnum tekur upp þráðinn í góðri sátt við nágranna sína með fjölbreytilegum húshlutum í svipuðum kvarða, sem raðast um húsagarð þar sem einnig er ekið inn í bílastæði í kjallara. Mjög er vandað til innra fyrirkomulags íbúða og ólík tengsl þeirra við staðinn og borgina eru nýtt á margvíslegan hátt, en yfirbragð þyrpingarinnar er stillt og efnisval yfirvegað.“
Umhverfið er mjög friðsælt og ekkert ónæði, Káratorg, handan við götuna, hefur verið endurhannað og verður endurbyggt fljótlega fyrir fjölskyldur. Brauð og Co er á Frakkastíg, handan við hornið. Allar nánari upplýsingar veitir Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6020, eða með tölvupósti á netfangið hallgrimur@trausti.is