Grænaborg 2

190 Vogar

Ásett verð: 79.900.000 kr.

Grænaborg 2
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
137,8 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
2022
Fermetraverð
579.826 kr.

Lýsing

** BÓKIÐ EINKASKOÐUN Á TÍMA SEM HENTAR YKKUR.

Hafið samband við Tinnu Bryde, löggiltan fasteignasala, í síma 660-5532 eða á tinna@haborg.is.

Glæsileg 4ra herbergja endaíbúð á jarðhæð með sérinngangi og stór verönd til suðurs – Grænaborg 2

Tinna Bryde löggiltur fasteignasali og Háborg fasteignasala kynna: Fallega og vel skipulagða 4ra herbergja endaíbúð á jarðhæð með sérinngangi við Grænaborg 2.

Um er að ræða íbúð í 10 íbúða vandað fjölbýlishúsi byggt árið 2022, hannað af Kristni Ragnarssyni arkitekt í samstarfi við Sir Arnar Gauta. Húsið er einangrað og klætt að utan með viðhaldslitlum trefjasementsplötum sem gera það einstaklega viðhaldslítið.

- Sérinngangur og stór verönd til suðurs

- Vel skipulögð 4ra herbergja íbúð

- Vandaðar innréttingar frá AXIS, Corian borðplötur og AEG tæki

- Rafhleðslustöð sem tilheyrir íbúðinni

Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma 660-5532 eða tinna@haborg.is

Íbúðin er 137,8 fm samkvæmt HMS og nýtur einstakrar útiaðstöðu með stóra verönd til suðurs.

Nánari lýsing:

Komið er inn í rúmgott anddyri með fataskáp. Inn af forstofu er geymsla.

Stofa og eldhús mynda bjart og opið alrými með góðri vinnuaðstöðu og miklu skápaplássi. Úr stofu er útgengt á stóra verönd til suð-vestur sem býður upp á góða aðstöðu til útiveru.

Eldhús er sérlega vandað með innréttingu frá AXIS, Corian borðplötu frá Orkus og innbyggðum heimilistækjum frá AEG, þar á meðal innbyggðum ísskáp og uppþvottavél.

Svefnherbergin eru þrjú , öll með parketi á gólfi og fataskápum frá AXIS.

Úr hjónaherbergi er aðgengi að einkabaðherbergi.

Baðherbergin eru bæði flísalögð og búin vandaðri innréttingu frá Ísleifi Jónssyni. Á baðberbergjum er sturta, salerni, handlaug og innrétting.

Þvottahús er rúmgott með tengi fyrir þvottavél og þurrkara ásamt innréttingu með skúffum.

Geymsla og lóð:

Á lóðinni er 12 fm skúr sem fylgir íbúðinni og nýtist vel til geymslu.

Rafhleðslustöð fyrir rafbíl tilheyrir íbúðinni.

Húsið:

Fjölbýlishúsið var byggt 2022 og hannað af Kristni Ragnarssyni arkitekt (KRARK) í samstarfi við Sir Arnar Gauta.

Húsið er einangrað og klætt að utan með viðhaldslitlum trefjasementsplötum. Íbúðirnar eru búnar þreföldu gleri, loftræstikerfi og LED lýsingu.

Hverfið:

Grænaborg er í nýju og vaxandi íbúðahverfi í Vogum sem hefur byggst upp á undanförnum árum. Hverfið er rólegt og fjölskylduvænt með fallegu umhverfi við sjávarsíðuna. Í nágrenninu er bæði leik- og grunnskóli og áform eru um frekari uppbyggingu skóla og þjónustu samhliða stækkun hverfisins.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.