Dofrahella 7B - TIL LEIGU

221 Hafnarfjörður

Dofrahella 7B - TIL LEIGU
Tegund
Atvinnuhúsnæði
Stærð
233,6 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
1
Byggingarár
2023

Lýsing

***VALHÖLL KYNNIR * NÝTT ATVINNUHÚSNÆÐI TIL LEIGU***

Til leigu 271 m² lager- og iðnaðarhúsnæði við Dofrahellu 7 í Hafnarfirði. Getur losnað strax.

Samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu hússins er gólfflötur 233,6fm. og milligólf sem er til staðar er óskráð.

Húsnæðið skiptist í einn stóran sal með einni stórri innkeyrsluhurð (5 x 5 m.) með drifbúnaði. Kaffistofa, starfsmannaaðstaða og salerni innst í húsnæðinu að mestu fullfrágengið. Inngöngudyr eru í báðum endum á húsnæðinu.

Húsnæðið er fullfrágengið utan og innan.

Lofhæð í sal 6-7 m. Milliloft er um 37 m². Olíuskilja er til staðar.

Mögulegt að fá hillukerfi fyrir lagerhald í sal leigt með eigninni.

Leiguverð umsemjanlegt

Nánari upplýsingar veita:

Agnar Agnarsson löggiltur fasteignasali / s.8201002 / agnar@valholl.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.

Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.