Bjarkargata 8

450 Patreksfjörður

Ásett verð: 37.000.000 kr.

Bjarkargata 8
Tegund
Hæð
Stærð
142,4 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
2
Byggingarár
1952
Fermetraverð
259.831 kr.

Lýsing

Opin og björt 5-6 herbergja íbúð við Bjarkargöti 8, Patreksfirði.

* Mjög vel skipulögð íbúð á efri hæð með sér inngangi

* 4 Svefnherbergi innan íbúðar + 1 rúmgott herbergi í kjallara með aðgangi að salerni

* Stór stofa & borðstofa

* Búið er að endurnýja glugga í svefnherbergjum, svefngangi og á baðherbergi

Íbúðin er samtals 142,4 fm, þar af er íbúðin sjálf 121,1 fm og geymsla/þvottahús á stigapalli er 2,7 fm, sér geymsla í kjallara 4,1 fm og stórt herbergi í kjallara 14,5 fm. Einnig fylgja sameiginlegt þvottahús og geymsla í sameign sem eru 17,8 fm.

Lýsing á eigninni;

Gengið er inn um sér inngang í íbúðina, teppi eru á stiga upp á efri hæð.

Þegar að upp er komið er geymsla / þvottahús á hægri hönd og inngangur í íbúðina til vinstri.

Þegar að inn er komið teku á móti manni hol sem nýta má sem sjónvarpshol

Eldhúsið er með hvítri eldhúsinnréttingu, það er opið og bjart með ágætis borðkrók.

Stofan / Borðstofan er opin og björt einnig með harðparketi á gólfi

Svefngangur með 3 svefnherbergjum og baðherbergi, eldhús, stór stofa og svefnherbergi nr. 4 er í alrými eignarinnar.

Baðherbergið er nýlega endurnýjað, upphengt salerni, walk inn sturta, baðinnrétting með skúffum og nýlegar vatnslagnir.

Hjónaherbergið er rúmgott, plastparket á gólfi

2 ágæt barnaherbergi með harð parket á gólfum.

Í kjallaranum er snyrtileg sameign, þar er sér geymsla sem fylgir íbúðinni ásamt sameiginelgu þvottahúsi og saleni. Rúmgott herbergi með glugga og aðgengi að salerni.

Húsið er snyrtilegt og lítur vel út að utan. Sólpallur á sameiginlegri lóð fyrir framan hús er séreign neðri hæðar

Frábær fjölskyldu eign á besta stað.