Suðurhólar 20

111 Reykjavík

Ásett verð: 64.900.000 kr.

Suðurhólar 20
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
91 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1979
Fermetraverð
713.187 kr.

Lýsing

Fasteignasalan TORG kynnir: Bókaðu skoðun. Vel skipulögð, rúmgóð og björt 3ja herb endaíbúð með miklu útsýni og sérinngangi af svalagangi, íbúðin er 91,0 fm og skiptist í stofu, 2 rúmgóð herbergi, eldhús, baðherbergi með þvottaaðstöðu, sér geymsla á hæðinni við hlið íbúðar. Stutt er í alla verslun og þjónustu, heilsugæslustöð, bókasafn, sundlaug, íþróttaaðstöðu, leikskóla og barna- og framhaldsskóla.

Allar nánari upplýsingar veitir Þóra Þrastardóttir Löggiltur fasteignasali í síma: 822-2225 eða á thora@fstorg.is

Sækja söluyfirlit hér

NÁNARI LÝSING.

Forstofa með fataskáp og flísum á gólfi.

Hol með plastparketi á gólfi.

Eldhús er rúmgott, 12 fm., innrétting með góðu skápaplássi og rúmgóðum borðkrók.

Stofa og borðstofa er björt og rúmgóð, ca. 25 fm. með plastparketi á gólfi, útgengi er á stórar skjólgóðar suður svalir með miklu útsýni til austurs yfir Heiðmörk, Elliðavatn, Bláfjöll og Vatnsendahæð.

Baðherbergi, er flísalagt í hólf og gólf, hvít eldri innrétting, baðkar með sturtuaðstöðu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara, gluggi er á baðherberginu.

Auka innbyggður fataskápur er á herbergisgangi.

Hjónaherbergi er rúmgott með stórum fataskápum og plastparketi á gólfi.

Barnaherbergi með fataskáp og plastparketi á gólfi.

Geymsla er á hæðinni við hlið íbúðar, rúmgóð með hillum. Sameiginlegt geymsluherbergi er í sameign á jarðhæð, þar sem hver er með sína hillu og þurrkherbergi þar sem eru tæki til bílaþvottar.

Sameiginleg vagna- og hjólageymsla á jarðhæð.

Húsið var sprunguviðgert og málað 2020, nýir gluggar voru settir í stigahús og nýtt þak á stigahúsið. Gaflar eru klæddir.

Lóð er snyrtileg og gróin, góð bílastæði eru við húsið.

​​​​Allar nánari upplýsingar veitir Þóra Þrastardóttir Löggiltur fasteignasali í síma : 822-2225 eða á thora@fstorg.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 3.800,-

3. Lántökugjald lánastofnunar - mismunandi eftir lánastofnunum.

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 74.900,- með vsk.