Grundarstígur 11

101 Reykjavík

Ásett verð: 56.500.000 kr.

Grundarstígur 11
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
45,3 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
1919
Fermetraverð
1.247.241 kr.

Lýsing

Hreiðar Levý lögg. fasteignasali, Aron Bjarna nemi til löggildingar fasteignasala kynna f allega, bjarta og mikið uppgerða 2ja herbegja íbúð í miðbæ Reykjavíkur, samtals 45,3 fm. Íbúðin er á 3. hæð í fallegu steinsteypu húsi að Grundarstíg 11. Eignin var öll standsett fyrir fáeinum árum á smekklegan máta þar sem eldhús, bað og gólfefni var endurnýjað.

Íbúðin er afar vel skipulögð með aukinni lofthæð og skiptist í gang sem tengi saman öll rými íbúðar, opið, bjart og fallegt alrými með samliggjandi stofu og eldhúsi, rúmgóðu svefnherbergi ásamt baðherbergi með sturtu. Þá fylgir eigninni sérgeymsla í kjallara. Húsið hefur fengið gott viðhald undanfarin ár þar sem það var meðal annars skipt um glugga að hluta og endursteinað.

Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý löggiltum fasteignasala í síma 661-6021 eða með tölvupósti í netfangið hreidar@betristofan.is eða hjá Aroni Bjarna nema til löggildingar fasteignasala í síma 845-8814 eða með tölvupósti í netfangið aron@betristofan.is

Húsið hefur fengið gott viðhald undanfarin ár:

2020 :

- Húsið allt múrviðgert að utan og steinað upp á nýtt.

- Gler og gluggar hússins endurnýaðir, nema í stigahúsi.

- Þakjárn, þakpappi, þakrennur og niðurföll endurnýjuð

- Skipt um útihurðir á þvottaherbergi og geymslugangi

Þar að auki voru klóaklagnir endurnýjaðar fyrir 15 árum

Nánari lýsing:

Gangur: Tengir saman öll rými íbúðar.

Alrými: Einstaklega fallegt og bjart rými með samliggjandi eldhúsi og stofu. Hátt til lofts og fallegir gluggar.

Eldhús: Endurnýjað fyrir 4 árum með fallegri innréttingu með innbyggðum ískáp, uppþvottavél, blástursofni, spanhelluborði og eldhúsvaski. Opið og samliggjandi stofu.

Stofa: Rúmgóð, falleg og björt. Opin við eldhús.

Herbergi: Rúmgott. Nýtt í dag sem fundarherbergi.

Baðherbergi: Endurnýjað á smekklegan hátt fyrir um 4 árum. Sturtuklefi, upphengt salerni, baðinnrétting með neðri skúffum, vask og spegli fyrir ofan vask. Flísar á gólfi.

Geymsla : Í kjallara hússins er 3,7 fm. sérgeymsla.

Sameign : Hjóla- og vagnageymsla. Þvotta- og þurrkherbergi með glugga. Stigahús er mjög snyrtilegt, linoleumdúklagt og nýlega málað.

Samkvæmt skráningu hjá HMS er birt flatarmál eignarinnar 45,3 fm. og þar af er sérgeymsla eignarinnar skráð 3,7 fm.

Einstaklega falleg íbúð á afar vinsælum stað í Þingholtunum með alla helstu verslun og þjónustu í stuttu göngufæri ásamt fjölbreyttri flóru kaffi- og veitingastaða, menningarhúsa og listasafna.

Nánari upplýsingar veitir:

Hreiðar Levý Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma 661- 6021 eða með tölvupósti í netfangið hreidar@betristofan.is

Aron Bjarnason nemi til löggildingar fasteignasala í síma 845-8814 eða með tölvupósti í netfangið aron@betristofan.is