Austurkór 30

203 Kópavogur

Ásett verð: 199.500.000 kr.

Austurkór 30
Tegund
Einbýlishús
Stærð
247,400000762939 m²
Herbergi
7
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
2
Byggingarár
2025
Fermetraverð
806.386 kr.

Lýsing

Fasteignasalan TORG og Sigríður Rut lgfs. gsm. 699-4610 kynna: Glæsilegt nýtt vel hannað einbýlishús með útsýni aukinni lofthæð og í grónu hverfi. Aukin lofthæð er á efri hæðin og gott skipulag. Um er að ræða 247 fm2 einbýlishús og þar að auki eru um það bil 63 fm2 yfirbyggt svæði sem búið er að leggja hitalagnir í gólf og er það rými ekki skráð með í heildarfermetrunum. Fallegur frágangur að innan sem utan. Gólfhitakerfi, gert ráð fyrir innfelldri lýsingu, fljótandi stigaþrep á vegg. Stórir gluggar, mjög rúmgóðar svalir, loftræstikerfi og innfelld blöndunartæki. Rafmagns- og ljósahönnun var unnin af Helga Eiríkssyni í Lumex. Rafmagns- og vatnsinntök eru komin inn í húsið, dreifikista fyrir heitt og kalt vatn er komin ásamt forhitara fyrir heita vatnið. Rafmagn er full frá gengið með lokaúttekt á rafmagni. Húsið er með Free @ Home hússtjórnunarkerfi frá ABB. Í dag er húsið skráð á byggingarstig (B2) .

Allar nánari veitir Sigríður Rut Stanleysdóttir löggiltur fasteignasali í gsm. 699-4610 eða siggarut@fstorg.is

Lýsing neðri hæðar samkvæmt teikningum

Gert er ráð fyrir allt að 3 svefnherbergjum

Góð forstofa og gert ráð fyrir innfelldum fataskápum

Sjónvarpshol

Baðherbergi

Þvottahús

Geymsla

Bílskúr skráður 29,2 fm2 samkvæmt HMS fasteignayfirliti

62,9 fm2 útisvæði sem er ekki skráð inní heildarfermetrunum og með möguleika að sækja um að loka.

Lýsing efri hæðar samkvæmt teikningum

Eldhús, borðstofa og stofa í rúmgóðu opnu rými með 2 rennihurðum út á svalir sem ná yfir alla suður- og vesturhlið hússins.

Hjónasvíta með möguleika á fataherbergi og innaf er rúmgott baðherbergi.

Vinnuherbergi/svefnherbergi

Gestasnyrting

Eignin verður afhent í eftirfarandi ástandi:

Um er að ræða full uppsteypt hús, sem í dag er skráð á byggingarstig 2 (fokheldi), en er vel rúmlega það, búið að jarðvegsskipta allri lóðinni, grófjafna lóðina og steypa garðveggi beggja megin við húsið.

Ath. Veggur við Austurkór 28 er í eigu Austurkórs 28.

Gert er ráð fyrir að hægt sé að leggja snjóbræðslukerfi.

Rammar minni glugga eru með álklæddu timbri.

Útihurðir, rennihurðir og stærri gluggar eru með álkörmum.

Álklæddir timburkarmar eru frá Berki hf. á Akureyri og gler í þá er frá Glerverksmiðjunni Samverk ehf.

Álhurðir, álgluggakarmar og álrennihurðir eru frá Fagval ehf. með sólvarnargleri.

Litur á öllum álkörmum og álkápum á timburkörmum er RAL: 7022 Umbrian Grey 30% gljástig.

Timbrið í timbur/álkörmum er málað í sama lit.

Bílskúrshurð er einnig í lit RAL: 7022 Umbrian Grey 30% gljástig, hurðaflekar eru með sléttri áferð. Bílskúrshurðin skilast með mótor. Svalahandrið er smíðað úr flatjárnum, galvanizerað og svo pólýhúðað til að auka ending í lit RAL:7022 Umbrain Grey 30% gljástig.

Innfelling fyrir ljós í steypu ásamt ljósum frá Lumex.

Öll ljós utan húss eru komin, fyrir utan garðlýsingu.

Stigi milli hæða er úr U-stálskúffum sem eru samansoðnar í ramma og boltaðar utan á vegginn og verða klæddar með timburplötum. Stigi og stigaop eru án handriða.

Gólfhitalagnir eru komnar á bæði neðri og efri hæð, gólfhitakistur tengdar, hiti kominn á báðar hæðir.

Ath. Stýrikerfi fyrir hitakerfi er ekki full klárað en að mestu leiti, og skilast í því ástandi eins og það er.

Þak er einangrað að utan og frágengið.

Húsið er að mestu einangrað að innan en að hluta til að utan.

Einangrun að innan er stærsti hluti af einangrun hússins. Minni háttar einangrun er að utanverðu.

Öll einangrun að innanverðu er tilbúin, ásamt múrvinnu, gipsvinnu og grunnmálningu.

Búið er að einangra að utan, setja upp undirkerfi og klæða með 1x6” timbri (undirkerfi klárt) klæðning verður ekki innifalin.

Þannig gefst kaupanda kostur á að velja klæðningu í samráði við arkitekt hússins.

Þeir milliveggir á efri hæð sem eru hlaðnir, eru hlaðnir með vikurstein.

Búið er að múra, sparsla og grunna þá, nema inni á baðherbergjum. Þar er eingöngu búið að múra. Hluti milliveggja eru reistir með gipsi.

Loft á báðum hæðum ásamt nokkrum steyptum veggjum eru sjónsteypt.

Búið er að setja innbyggðan búnað fyrir handlaugartæki og klósettkassa í öll baðherbergi, ásamt innbyggðum búnaði fyrir sturtutæki á efri hæð. Ath. eingöngu er um að ræða innbyggða hluti.

Innbyggður handlauga- og sturtubúnaður eru gæðavara frá Vola.

Vakin er athygli á að sturtubúnaður á neðri hæð er ekki innifalinn, þar sem veggur sem tækið á að fara inní er aðeins að hluta kominn upp.

Loftræstilagnir fyrir báðar hæðir eru steyptar í gólfplötu efri hæðar. Ekki er innifalin samstæða eða tengi- og tæknibúnaður fyrir loftræstikerfi. Allt sem snýr að arin er ekki innifalið, nema búið er að ganga frá röri í þakeinangrun fyrir kamínu.

Ath. kjarnabora þarf í gegnum útvegg fyrir kamínuröri.

Rafmagns- og vatnsinntök eru komin inn í húsið, dreifikista fyrir heitt og kalt vatn er komin ásamt forhitara fyrir heita vatnið. Rafmagn er full frá gengið með lokaúttekt á rafmagni. Húsið er með Free @ Home hússtjórnunarkerfi frá ABB

Sá hluti hússins sem er múraður að utanverðu er filtaður uppúr gráu steiningalími frá Steypustöðinni og málaður með Steinvara 2000 (hvítt 500) frá Málningu hf.

Raflagnateikningar\ Raflögn, hússtjórnunarkerfi ásamt lýsingarhönnun frá Lúmex fylgja með í kaupunum, (tækjaskápur í bílskúr).

Lagnir: Frágangur neyslu og fráveitulagna er miðaður við samþykktar skipulagsteikningar. Inntak hita og neysluvatns klárt.

Neysluvatn lagt í gólf og veggi samkvæmt teikningum. Hita-, rafmagns og vatnslagnir eru lagðir í gólfplötu og steypta innveggi samkvæmt teikningum.

Húsið er hitað upp með hefðbundnu gólfhitakerfi og afhendist án þráðlausra hitastýringa. Stofninntök neysluvatnslagna tengd og full frágengin.

Byggingargjöld og gatnagerðargjald eru greidd.

Kaupandi greiðir 0,3% skipulagsgjald sem er innheimt við endanlegt brunabótarmat.

Kaupandi skal fá nýja byggingastjóra og meistara að verkinu við afhendingu og sér um úttektir eftir afhendingu eignar.

Allar bygging…