Koltröð 3
700 Egilsstaðir
Ásett verð: 84.800.000 kr.

- Tegund
- Einbýlishús
- Stærð
- 212,199999237061 m²
- Herbergi
- 6
- Svefnherbergi
- 5
- Baðherbergi
- 2
- Byggingarár
- 1989
- Fermetraverð
- 399.623 kr.
Lýsing
Vel staðsett einbýlishús á tveimur hæðum með fimm svefnherbergjum, baðherbergi á báðum hæðum og tvöföldum bílskúr. Örstutt í skóla og íþróttamiðstöð.
Á efri hæð eru stofa og eldhús í opnu og sérlega rúmgóðu rými með parket á gólfi og útgengt á timburverönd við suðurhlið hússins. Baðherbergi hefur allt verið endurnýjað og flísalagt í hólf og gólf. Þar er fín innrétting, handklæðaofn og rúmgóð sturta. Inn af herbergjagangi eru þrjú svefnherbergi, öll með parket á gólfi og fataskápar eru í öllum herbergjum.
Á neðri hæð eru tvö svefnherbergi til viðbótar, einnig með parket á gólfi og með fataskápum. Á neðri hæð er annað baðherbergi sem einnig hefur verið endurnýjað með flísum á gólfi og flísapanil á veggjum. Þar er sturta, handklæðaofn og fín innrétting. Nokkuð rúmgott þvottahús með innréttingu er á neðri hæð og þaðan er útgengt. Innangengt er af neðri hæð í tvöfaldan bílskúr. Í bílskúr hefur sjötta svefnherbergið verið útbúið en einfalt er að fjarlægja það.