Ljósheimar 12

104 Reykjavík

Ásett verð: 71.900.000 kr.

Ljósheimar 12
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
99,8 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1960
Fermetraverð
720.441 kr.

Lýsing

Borg fasteignasala kynnir til sölu: Bjarta & vel skipulagða 4 herbergja endaíbúð á 1. hæð í Ljósheimum 12, 104 Reykjavík.

Skráð stærð eignar skv. FMR er 99.8 fm og skiptist í íbúð 96.1 fm og geymslu 3.7 fm. Íbúðin er merkt 01-01.

Sækja söluyfirlit og skrá sig á opið hús

Ertu í söluhugleiðingum?

Eignin skiptist í:

Forstofu, þrjú svefnherbergi, eldhús, stofu, baðherbergi, þvottahús, svalir og geymslu.

Nánari lýsing eignar:

Stofa: rúmgóð og björt með harðparketi á gólfi.

Eldhús: ljósgrá innrétting, með innbyggðri uppþvottavél, bakaraofni, helluborð og háfi. Harðparket á gólfi. Úr eldhúsi er útgengt á vestur svalir með svalalokun.

Hjónaherbergi: rúmgott með harðparketi á gólfi.

Svefnherbergi 1: með harðparketi á gólfi.

Svefnherbergi 2: með dúk á gólfi og fataskáp.

Baðherbergi: flísalagt gólf og hluti veggja. Baðkar með sturtu, hvít innrétting með vaski og upphengt salerni.

Þvottahús: tengi fyrir þvottavél og þurrkara, opnanlegur gluggi og er með steyptu gólfi.

Geymsla: staðsett í sameign.

Hjóla- og vagnageymsla: eru sameiginleg í sameign.

Þvottahús: auk sér þvottahúss innan íbúðar, er sameiginlegt í sameign.

Rafhleðsla er fyrir tvo bíla á sameiginlegu bílastæði hússins.

Í húsinu er húsvörður.

Núverandi skipulag á íbúðinni er ekki í samræmi við samþykktar teikningar.

Ljósheimar 12 er vel staðsett eign í vinsælu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, eins og t.d. skóla, leikskóla, verslanir, sund, líkamsrækt, heilsugæslu.

Nánari upplýsingara veitir:

Victor Levi R. Ferrua, löggiltur fasteignasali á Borg fasteignasölu.

s. 868 2222 - victor@fastborg.is

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af fasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.

3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.