Lerkibyggð 1

270 Mosfellsbær

Ásett verð: 114.900.000 kr.

Lerkibyggð 1
Tegund
Parhús
Stærð
118,4 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
2018
Fermetraverð
970.439 kr.

Lýsing

** Opið hús þriðjudaginn 17. nóvember frá kl. 16:30 til 17:00 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög fallegt og vel skipulagt 118,4 m2 parhús á einni hæð á eftirsóttum stað við Lerkibyggð 1 í Mosfellsbæ. Mjög stór afgirt timburverönd í suðvesturátt. Eignin skiptist í forstofu, stofu og borðstofu, eldhús, gang, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi og tvær geymslur innan hússins. Eignin stendur á 1.107,7 m2 eignarlóð sem er sameiginleg með Lerkibyggð 3 í jaðrinum á eldra hverfi við Grenibyggð í Mosfellsbæ. Á lóðinni eru tveir sérafnotafletir samkvæmt afstöðumynd. Annar hluti lóðar er í óskiptri sameign. Mikill gróður er umhverfis lóðina sem stendur á fallegum stað rétt við Varmá. Frábær staðsetning í grónu og friðsælu hverfi í Mosfellsbæ, með leikskóla í næsta nágrenni.

** Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax **

Nánari lýsing:

Forstofa er með flísum á gólfi og fataskápum. Gólfhiti og innbyggð lýsing. Aðgengi er upp á rúmgott geymsluloft í forstofu.

Stofa og borðstofa er rúmgóðar og bjartar með parketi á gólfi. Mikil lofthæð og innbyggð lýsing. Útgengt er á timburverönd í suðvesturátt.

Eldhús er opið við stofu með parketi á gólfi og fallegri L-laga innréttingu ásamt veggfastri eldhúseyju. Í innréttingu er bakaraofn, helluborð, innbyggður ísskápur og innbyggð uppþvottavél. Innbyggð lýsing. Úr eldhúsi er útgengt á timburverönd í suðvesturátt.

Gangur er með parketi á gólfi.

Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er rúmgott með parketi á gólfi og fataskápum.

Svefnherbergi 2 er með parketi á gólfi og fataskápum.

Svefnherbergi 3 er með parketi á gólfi og fataskápum.

Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með góðri innréttingu, handlaug, "walk-in" sturtu, upphengdu salerni og handklæðaofni. Gólfhiti og innbyggð lýsing. Inn af baðherbergi er þvottaherbergi.

Þvottaherbergi er með flísum á gólfi, skolvaski og góðri innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara.

Geymslurnar eru tvær; önnur inn af forstofu með flísum á gólfi, hin inn af gangi með parketi á gólfi.

Fyrirhugað fasteignamat árið 2027 er 108.700.000 kr.

Verð kr. 114.900.000,-