Aðalbraut 37

675 Raufarhöfn

Ásett verð: 13.000.000 kr.

Aðalbraut 37
Tegund
Einbýlishús
Stærð
191,4 m²
Herbergi
8
Svefnherbergi
6
Baðherbergi
2
Byggingarár
1948
Fermetraverð
67.921 kr.

Lýsing

Á austurströnd Melrakkasléttu er Raufarhöfn, nyrst alla þorpa á Íslandi. Hvergi á Íslandi verður vornóttin bjartari né vetrardagurinn myrkari. Heimskautsbaugur er rétt við ströndina og á ásnum fyrir ofan þorpið er Heimskautsgerðið , stærsta útilistaverk á Íslandi sem tvinnar saman íslenska menningu, bókmenntasögu og sígild vísindi við sérstæðar náttúruaðstæður.

Til sölu Aðalbraut 37 á Raufarhöfn. Um er að ræða fasteign á tveimur hæðum, samtals rúmir 191 m². Tvær stofur, sex herbergi, eldhús, þvottahús og tvær geymslur. Fasteign þessi samanstóð eitt sinn af tveimur íbúðum og ekkert stórmál að snúa henni til fyrra horfs. Staðsetningin er miðsvæðis í þorpinu, steinsnar frá matvöruverslun og heilsugæslu.