Urðarbrunnur 50

113 Reykjavík

Ásett verð: 95.900.000 kr.

Urðarbrunnur 50
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
125,8 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
2021
Fermetraverð
762.321 kr.

Lýsing

Borg fasteignasala kynnir eignina Urðarbrunn 50, 113 Reykjavík, nánar tiltekið stóra og glæsilega efri hæð í 4ra íbúða húsi í Úlfarsárdal í Reykjavík. Eignin er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 251-2441, birt stærð 125.8 fm. Eignin skiptist í stórt alrými sem rúmar stofu, borðstofu og eldhús. Þrjú rúmgóð herbergi og baðherbergi/þvottahús. Góð geymsla á jarðhæð. Sameiginleg hjóla og vagnageymsla. Virkilega falleg eign. Mikið útsýni. Sjónsteypuveggir/loft og aukin lofthæð.

Skipulag: Komið er inn í anddyri/hol með góðum skáp. Rúmgóðar, bjartar stofur með fallegu vínilparketi á gólfum, sjónsteypa á einum vegg sem setur skemmtilegan svip á íbúðina, úr stofu er útgengi út á stórar útsýnissvalir. Opið inn í fallegt eldhús með eyju, innbyggður ískápur og innbyggð uppþvottarvél fylgja með eigninni. Fallegt vínelparket er á allri íbúðinni. Svefnherbergisgangur þar eru þrjú rúmgóð herbergi með skápum. Flísalagt baherbergi með sturtu, innréttingu. Þvottarhús inn af baðherbergi með innréttingu fyrir þvottarvél og þurrkara og samskonar flísum á gólfi og eru á baðherbergi. Myrkvunargardínur frá Álnabæ í svefnherbergjum. Á neðri hæð er sameiginleg hjóla og vagnageymsla og sér 6,0 fm geymsla. Húsinu fylgja 7 sameiginleg stæði. Hleðslustöð fyrir 2 bíla.

Þetta er hin glæsilegasta íbúð á góðum stað í Úlfarsárdal. Göngufæri í skóla, sund og íþróttastarf. Aðeins 25 mínútna akstur í Bláfjöll.

Úlfarsárdalur er eitt af nýrri hverfum borgarinnar. Eitt af einkennum hverfisins er mikil nánd við náttúruna og í göngufæri við hverfið eru náttúruperlur eins og Úlfarsfellið, Reynisvatn, Hafravatn og Hólmsheiðin. Hverfið státar einnig af metnaðarfullu starfi, leikskóla, grunnskóla, frístundaheimili, öflugri félagsmiðstöð og íþróttafélaginu Fram.

Nánari upplýsingar veita :

Börkur Hrafnsson lögmaður og lögg. fasteignasali, í síma 892-4944, tölvupóstur borkur@fastborg.is.

Úlfar Þór Davíðsson lögg. fasteignasali, í síma 788-9030, tölvupóstur ulfar@fastborg.is

Með undirritun sinni á þetta söluyfirlit staðfestir seljandi/seljendur að efni þess sé rétt samkvæmt hans/þeirra bestu vitund. Kaupandi/kaupendur staðfestir/staðfesta með áritun sinni á þetta söluyfirlit að hann/þeir/þau hafi kynnt sér efni þess.