Þórunnarstræti 106A

600 Akureyri

Ásett verð: 51.500.000 kr.

Þórunnarstræti 106A
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
90,5 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1948
Fermetraverð
569.061 kr.

Lýsing

Fasteignamarkaðurinn ehf., s. 570-4500 kynnir til sölu 90,5 fermetra 3ja herbergja íbúð á miðhæð hússins nr. 106 við Þórunnarstræti á Akureyri. Sérinngangur er í íbúðina. Þrjár íbúðir eru til sölu í húsinu.

Eignin er vel staðsett í göngufæri við miðbæinn og stutt er í sundlaug Akureyrar.

Lýsing eignar:

Íbúðin skiptist í forstofu, hol, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi og baðherbergi.

Forstofa, flísar á gólfi.

Gangur, með fataskáp. Parket á gólfi.

Eldhús , með viðarinnréttingu og flísum á milli skápa. Korkur á gólfi.

Tvö svefnherbergi, bæði rúmgóð og bæði parketlögð.

Stofa, rúmgóð. Parket á gólfi.

Baðherbergi, með lítilli innréttingu og upphengdu salerni. Flísalagt í gólf og veggi.

Húsið hefur verið endurnýjað að miklu leyti á síðustu árum skv. upplýsingum frá seljanda eignarinnar: Nýjar inntakslagnir fyrir heitt og kalt vatn.

Nýr brunnur í lóð og frárennslislagnir í lóð eru nýjar.

Nýr ljósleiðari.

Inntaksrör hafa verið lögð í bílskúr.

Húsið var málað að utan og innan árið 2024.

Þakrennur og niðurfallsrör yfirfarin og endurnýjuð árið 2024.

Þakjárn var endurnýjað fyrir nokkrum árum og er í lagi.

Raflagnir og vatnslagnir hafa verið endurnýjaðar að hluta.

Ný rafmagnstafla fyrir allar íbúðir + fyrir allt húsið (í sameign).

Ný inntaksgrind fyrir vatn.

Ný hitalögn í bílaplani.

Búið er að jarðvegsskipta allt í kringum húsið og drena.

Nýsteypt bílaplan og nýsteyptar gangstéttar.

Nýjar svalir á efri hæð + ný handrið á efri og neðri svölum.

Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is.