Norðurgata 58
600 Akureyri
Ásett verð: 69.000.000 kr.

- Stærð
- 156,5 m²
- Herbergi
- 6
- Svefnherbergi
- 5
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 1949
- Fermetraverð
- 440.895 kr.
Lýsing
Frábær útleigueining
156,5fm vel skipulögð efri hæð með sérinngangi í snyrtilegu tvíbýli við Norðurgötu á Eyrinni, örstutt í skóla og alls konar verslanir og þjónustustarfsemi.
Eign skiptist í:
Jarðhæð: Forstofa, forstofuherbergi og stigauppgangur, hlutdeild í sameiginlegu þvottahúsi og sérgeymsla.
Efri hæð: Hol, fimm svefnherbergi og tvær samliggjandi stofur, eldhús og baðherbergi.
Nánari lýsing: Komið er inn í forstofu með teppi á gólfi. Forstofuherbergi er með dúk á gólfi og fataskáp. Stigahús með steyptum, teppalögðum stiga upp á efri hæð. Fjögur svefnherbergi eru á efri hæð, öll með parketi á gólfum. Stofur eru tvær, samliggjandi með parketi á gólfum, önnur stofa var áður nýtt sem svefnherbergi og þar er fataskápur. Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum. Eikarinnrétting og skápar, frístandandi sturtuklefi. Eldhús er með hvítlakkaðri innréttingu, dökkri borðplötu, flísum á milli efri og neðri skápa og dúk á gólfi,
Gengið er niður steyptan stiga úr eldhúsi niður í sameign. Þar er sameiginlegt þvottahús með lökkuðu gólfi og sérgeymsla. Gengið út á baklóð úr þvottahúsi. Góð nýting á eigninni, sérlega heppilegt skipulag fyrir stærri fjölskyldur. Eignin hefur verið í útleigu, stök herbergi og hentar afar vel til þess, 5 svefnherbergi sem hægt er að leigja.