Davíðshagi 6 - 101

600 Akureyri

Ásett verð: 71.900.000 kr.

Davíðshagi 6 - 101
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
94,4 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
2019
Fermetraverð
761.653 kr.

Lýsing

Fasteignasalan Byggð 464-9955

Davíðshagi 6 - 101

Um er að ræða fallega fjögurra herbergja íbúð á jarðhæð í austurenda í fjölbýlishúsi nyrst í Hagahverfi. Eignin er skráð 94,4 fm. að stærð þar af er geymsla 8,8 fm. Góð verönd sunnan við hús, mjög snyrtileg sameign og rúmgóð geymsla.

Eignin skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og stofu og eldhúsi í opnu rými. Eigninni tilheyrir rúmgóð geymsla í kjallara.

Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp.

Svefnherbergin eru þrjú, öll eru þau rúmgóð með parketi á gólfi og fataskápum.

Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, góð innrétting við vask ásamt speglaskáp, upphengt wc og sturta með glerhurðum. Stæði í innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.

Eldhús og stofa í opnu rými með parket á gólfi. Góð innrétting í eldhúsi með flísum milli efri og neðri skápa, innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur með frysti fylgir með við sölu eignar. Úr rýminu er hurð út á steypta verönd.

Sér 8,8 fm. geymsla sem er staðsett í sameignarrými í kjallara, geymslan er með flísum á gólfi og hillum. Sameignin er afar snyrtileg með flísum á gólfi, gott aðgengi austan við hús inn í sameign hússins.

Annað:

- Sér inngangur í íbúð

- Íbúðin er nýlega máluð

- Gólfhiti er í öllum rýmum íbúðar.

- Innihurðir eru úr plastlagðri struktur-eik sem og innréttingar í íbúðinni.

- Stækkun á verönd til vesturs.

- Mynddyrasími

- Snyrtileg sameign.

- Snjóbræðsla í stétt að hluta fyrir framan hús.

- Rafhleðslustöðvar fyrir 4 bíla framan við hús.

- Stutt í náttúruparadís í Naustaborgum og Kjarnaskóg

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Frekari upplýsingar:

bjorn@byggd.is

greta@byggd.is

olafur@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.

S: 464 9955