Strandvegur 16

210 Garðabær

Ásett verð: 98.900.000 kr.

Strandvegur 16
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
121,2 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
2004
Fermetraverð
816.007 kr.

Lýsing

RE/MAX og Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Einstaklega falleg og björt fjögurra herbergja 121,2 fm. íbúð á þriðju og efstu hæð ásamt stæði í bílgeymslu á vinsælum stað við Strandveg 16, Garðabæ. Íbúðin er 113,7 fm. og skiptist í forstofu, opið alrými, eldhús, borðstofu og stofu, opið eldhús, þrjú rúmgóð svefnherbergi og baðherbergi. Þvottahús er innan íbúðar og sérgeymsla 7,5 fm. staðsett í sameign. Myndavéladyrasími er í íbúð.

Góð eign í eftirsótt hverfi í Garðabæ. Náttúra og fallegar gönguleiðir í nágrenninu, stutt í leik- og grunnskóla og alla helstu þjónustu. Húsið er byggt af Bygingarfélagi Gylfa og Gunnars (BYGG) árið 2004.

KÍKTU Í HEIMSÓKN OG SJÁÐU EIGN Í 3D MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

FÁÐU SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

Upplýsingar veitir Guðrún Lilja í síma 867-1231 eða með tölvupósti gudrunlilja@remax.is

Nánari lýsing:

Forstofa er opin inn í aðalrýmið og með fataskápum. Á vinstri hönd er glæsileg stofa og borðstofa með mikilli lofthæð og gólfsíðum gluggum . Milli húsa er fallegt útsýni til sjávar . Úr borðstofu er útgengt út á svalir.

Eldhús er flísalagt með nýlegum hvítum innréttingum með góðu skápaplássi. Steinn er á borðum með innfelldu spanhelluborði og undirlímdum vaski. Bökunarofn er í vinnuhæð.

Svefnherbergin eru þrjú , mjög rúmgóð og björt með fataskápum.

Baðherbergi er flísalagt með fallegri innréttingu, handklæðaofni og sturtubaðkari. Náttúruflísar eru á gólfum og hvítar flísar á veggjum.

Þvottahús er flísalagt, með vaski og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Sérgeymsla er um 7,5 fm. að stærð, staðsett í sameign ásamt hjóla og vagnageymslu.

Bílastæði er vel staðsett í lokaðri bílgeymslu með rafhleðslustöð. Sameiginleg bílastæði á lóð fyrir framan hús.

Parket íbúðar hefur verið pússað upp og lakkað en í forstofu, eldhúsi, baðherbergi og þvottahúsi er náttúrusteinn á gólfum. Nýlega voru settar upp vandaðar gardínur og einnig var settur upp nýr veggur/skilrúm í forstofu.

Strandvegur 12-14-16 eru þrír sambyggðir þriggja hæða stigagangar með kjallara, samtals 24 íbúðir. Sameiginlegt húsfélag er fyrir eignirnar, í rekstri hjá Eignaumsjón. Það er ekki lyfta í húsinu en aðeins er gengið upp tvær hæðir frá anddyri.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.