Vatnsendahlíð 65

311 Borgarnes

Ásett verð: 44.900.000 kr.

Vatnsendahlíð 65
Tegund
Sumarhús
Stærð
72,8000001907349 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Byggingarár
1989
Fermetraverð
616.758 kr.

Lýsing

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Fallegt sumarhús ásamt gestahúsi og tveimur geymsluskúrum á 2.634 m2 leigulóð við Vatnsendahlíð 65 við Skorradalsvatn í Borgarfirði. Mikill trjágróður er á lóðinn og stór timburverönd. Eignin er skráð 53,0 m2 sumarbústaður. samkvæmt skráningartöflu á er gestahús skráð 13,8 m2 og geymsla skráð 6,0 m2 eða samtals 72,8 m2.

Eignin skiptist í forstofu, stofu og eldhús í opnu rými, 3 svefnherbergi, baðherbergi, gestahús með svefnherbergi og baðherbergi og tvo geymsluskúra.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent

Nánari lýsing:

Rafmagnsgólfhiti er í húsinu.

Forstofa er með parket á gólfi og fatahengi.

Baðherbergi er með dúkflísum á gólfi, Fibo-baðplötum á veggjum, innréttingu, vegghengdu salerni og sturtu. Gluggi er að baðherbergi. Varmaskiptir er fyrir neysluvatn á baðherbergi.

Svefnherbergi nr. 1 er með fataskápum og parketi á gólfi.

Svefnherbergi nr. 2 er með kojum og parketi á gólfi.

Svefnherbergi nr. 3 er með fataskáp og parketi á gólfi.

Eldhús og stofa eru í opnu björtu rými með parketi á gólfi. Falleg kamína er í rýminu. Í eldhúsi er L-laga eldhúsinnrétting. Úr eldhúsi og úr stofu er gengið út á timburverönd.

Gestahús:

Svefnherbergi með parketi á gólfi

Baðherbergi með handlaug, salerni og sturtu. Gluggi er á baðherbergi. Engöngu er kalt vatn á baðherbergi en varnaskiptir er á baðherbergi ótengdur.

Geymsluskúr nr. 1:

Er á timburverönd með rafmagni.

Geymsluskúr nr. 2

Er með innkeyrsluhurð, inngangshurð og malargólfi.

Skorradalur, er umvafin fjöllum, skógi og vatni, og býður upp á einstaklega fallegt útsýni. Þá er staðurinn þekktur fyrir mikla veðursæld og fegurð. Um klukkutíma akstur er frá Reykjavík. Góð aðkoma frá Skorradalsvegi og stutt í Borgarnes þar sem öll helsta þjónusta er aðgengileg. Stutt er í náttúruperlur, og sund, golf, Hraunfossa, Krauma, Reykholt og Húsafell. Einnig má nefna veiði, göngu, hjólreiðar og annað sumarsport.

Rekstrarkostnaður 2026, á ársgrundvelli:

Fasteignagjöld = 138.885 kr.

Lóðarleiga = 213.437 kr

Brunatrygging = 52.000 kr.

Sumarhúsafélag = 23.500 kr.

Verð kr. 44.900.000,-