Einbúablá 44A
700 Egilsstaðir
Ásett verð: 62.500.000 kr.

- Tegund
- Parhús
- Stærð
- 115,49999961853 m²
- Herbergi
- 3
- Svefnherbergi
- 2
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 2000
- Fermetraverð
- 541.126 kr.
Lýsing
Mjög flott þriggja herbergja íbúð með innbyggðum bílskúr í parhúsi á góðum stað við Einbúablá á Egilsstöðum. Malbikað bílastæði og hellulögð aðkoma að húsi, allt með snjóbræðslukerfi og fallegur og vel hirtur garður.
Stofa og eldhús eru í opnu rými með útgengt á timburverönd og parket á gólfi en allt parket var endurnýjað 2025 sem og innihurðir. Baðherbergi var alveg endurnýjað 2024. Þar eru flísar og hiti í gólfi og fíbóplötur á veggjum. Á baðherbergi er sturta, flott innrétting og handklæðaofn. Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni, bæði rúmgóð og með parket á gólfi. Fjórfaldur fataskápur er í öðru herberginu. Forstofa er flísalögð sem og þvottahús og bílskúr. Fín innrétting er í þvottahúsi og innangengt er í bílskúr í gegnum þvotthús. Í bílskúr er bílhurð. Í íbúðinni er góð geymsla með parket á gólfi.