Ásvegur 6
620 Dalvík
Ásett verð: 89.950.000 kr.

- Tegund
- Einbýlishús
- Stærð
- 228,7 m²
- Herbergi
- 8
- Svefnherbergi
- 6
- Baðherbergi
- 2
- Byggingarár
- 1966
- Fermetraverð
- 393.310 kr.
Lýsing
Mjög gott og mikið endurnýjað 7 herbergja 229m2 einbýlishús á flottum stað á Dalvík, bílskúr og falleg lóð fylgir, svalir með flottu útsýni til suður og vesturs.
Þrjú svefnherbergi eru á efri hæð og þrjú á neðri hæð.
Lýsing:
Forstofa: Ljósar flísar á gólfi, góð spónlögð innrétting og gott skápapláss í forstofu.
Stofa: Ljóst parket, stórir gluggar sem gera rýmið bjart og skemmtilegt.
Borðstofa er inn af eldhúsi, þar er parket á gólfi.
Eldhús: Afar vel skipulagt og rúmgott. Ný gólfefni, ljós glæný innrétting með ljósum borðplötum, niðurfelldum vaska, keramik spanhelluborði, svört heimilistæki frá Siemens, ofn og örbylgjuofn. Ísskápur og uppþvottavél innbyggð í innréttingu.
Á efri hæð eru þrjú svefnherbergi, í hjónaherbergi eru góðir fataskápar, ljóst parket á þeim öllum, stofu og borðstofu.
Baðherbergi er nýlega uppgert, ljósbrúnar flísar á gólfi og ljósar flísar á veggjum, spónlögð innrétting, hvít hreinlætistæki, vegghent salerni, handlaug og sturtuklefi.
Stigi milli hæða er með brúnu teppi, sérinngangur er á neðri hæð og auðvelt að hafa tvær íbúðir í húsinu.
Neðri hæð:
Forstofa er með ljósum flísum á gólfi.
Svefnherbergi eru þrjú. Nýtt parket á öllum sem og í alrýminu.
Baðherbergi á neðri hæð er með ljósum flísum á gólfi, hvít nýleg innrétting, sturta með flísalögðum botni.
Rúmgott þvottahús er á neðri hæð ásamt lítilli geymslu. Hvít innrétting með efri og neðriskápum og vaskur. Bakdyrainngangur er í þvottahús.
Geymsla: Lítil geymsla er undir stiganum upp á efri hæð. Einnig lítil geymsla undir útistiga.
Nýtt gler í flestum gluggum
Ný rafmagnstafla á efri hæð.
Falleg, gróin og vel hirt lóð, tvöfalt bílastæði.
- Vel staðsett eign á rólegum og góðum stað í bænum.
- Gott útsýni af sólpalli.
- Sólpallur byggður upp þannig að hann stendur í sömu hæð og svalir fyrir framan hús
- Stutt í verslun.