Skógarhlíð 16 Lónsbakka

604 Akureyri

Ásett verð: 147.500.000 kr.

Skógarhlíð 16 Lónsbakka
Tegund
Einbýlishús
Stærð
247,900003051758 m²
Herbergi
7
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
2
Byggingarár
2004
Fermetraverð
594.998 kr.

Lýsing

EIGNAVER 460-6060

Skógarhlíð 16, Hörgársveit.

Glæsilegt 247,9 fm hús á tveimur hæðum, steypt jarðhæð og efri hæð úr finnsku límtré, þrefalt gler í gluggum. Fullkomin eign fyrir stórfjölskylduna.

Góður flísalagður bílskúr á tveimur hæðum. Fallegur og skjólgóður garður, þar er gestahús, 15. fm. sem tengist húsinu og lóðinni með fallegum timbur-göngubrúm.

Rúmgóð timburverönd er í kringum húsið. Heitur pottur og grillskýli, frábær aðstaða fyrir fjölskylduveislur.

Sérlega stór lóð og hægt að keyra inn á lóðina með ferðavagna og kerrur.

Sjón er sögu ríkari. Bókið einkaskoðun. Einstök eign sem býður upp á mikla möguleika !

Nánari lýsing:

Aðalhæðin samanstendur af forstofu, baðherbergi, hjónaherbergi, holi, eldhús,borðstofa og stofa koma saman í eitt opið rými. Úr stofu er gengið út á ca. 120 fm timburverönd sem nær í kringum húsið, þar er heitur pottur og grillskýli.

Forstofa flísar á gólfi, fatahengi.

Hjónaherbergi er rúmgott, flísar á gólfi, góðir skápar, inngangur úr herbergi er inn á baðherbergi.

Baðherbergi með flísum á gólfi, hvít innrétting, " walk in sturta "

Eldhús flísar á gólfi, ljós falleg innrétting, góð eyja með spanhelluborði. Uppþvottavél í vinnuhæð. Vinnuaðstaða í eldhúsi er til fyrirmyndar.

Borðstofa flísar á gólfi, borðstofa er björt og rúmgóð.

Stofa er flísalögð, gengið er út á verönd sem nær í kringum húsið. Heitur pottur og grillskýli.

Neðri hæð:

Timburstigi með teppalögðum þrepum.

Hol er með flísum á gólfi, rúmgott hol er nýtt sem sjónvarpshol.

Svefnherbergi eru tvö á jarðhæð, flísar á gólfi, skápar í báðum herbergjum. Herbergi eru rúmgóð..

Baðherbergið er mjög rúmgott, "walk in sturta " , góð innrétting, flísar á gólfi, handklæðaofn.

Þvottahús er nýlega uppgert, góð innrétting, flísar gólfi og útgangur úr þvottahúsi út í garð sem skartar góðri grasflöt ásamt því gróður fær að njóta sín.

Bílskúr:

Bílskúr flísar á gólfi, góð innkeyrsluhurð, góð innkeyrsluhurð, góð lofthæð.

Bílskúr neðri hæð málað gólf. Neðri hæð skiptist í geymslu og gott svefnherberbergi, upp hengt wc og vaskur í lítill innréttingu

Annað;

- Afar glæsilegt hús og vel við haldið

- Hiti í bílaplani

- Stæði fyrir allt að 6 bíla á bílaplani.

- Þrefalt gler.

- Afar skemmtilegur garður.

- Róleg gata með lítilli umferð.

- Fimm mínútna gangur í leikskóla

- Skólabíll frá Þelamerkurskóla stoppar á móts við húsið.

- ATH Símaklefi fylgir ekki með

HÚSEIGNIN ER Í EINKASÖLU HJÁ EIGNAVERI FASTEIGNASÖLU.

Nánari upplýsingar veita;

Arnar s; 898-7011 / arnar@eignaver.is

Begga s; 845-0671 / begga@eignaver.is

Tryggvi s; 862-7919 / tryggvi@eignaver.is