Skjólbraut 2

200 Kópavogur

Ásett verð: 88.500.000 kr.

Skjólbraut 2
Tegund
Hæð
Stærð
119,9 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1952
Fermetraverð
738.115 kr.

Lýsing

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Falleg björt íbúð á annarri hæð með suður svölum í góðu fjórbýlishúsi á vinsælum stað í Kársnesinu í Kópavogi.

Frábær staðsetning innst í botnlanga í göngufæri við alla helstu þjónustu.

* Suður svalir

* Fallegt útsýni

* Bílskúr

* Næg bílastæði

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Inga Reynis löggiltur fasteignasali í síma 820-1903 eða á netfanginu inga@palssonfasteignasala.is eða

Orri Hilmarsson astmf. S:615-3011 eða orri@palssonfasteignasala.is

[link]

[link]

Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er heildarfermetratalan 119,9 fm þar af er bílskúrinn 24,5 fm.

Íbúðin er mikið endurnýjuð og skiptist í anddyri, hol, tvö stór svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, uppgert eldhús í sameiginlegu rými með stofunni með útgengt á suðursvalir.

Nánar um eignina

Komið inn í hol með parket á gólfi og góðu fatahengi.

Stofa er mjög rúmgóð og björt með gluggum til beggja átta. Útgengt er á suður svalir og parket á gólfi.

Eldhús er parketlagt með nýlegri innréttingu frá Rafha, góðu skápaplássi og rúmgóðum innbyggðum ísskáp sem fylgir eigninni. Ofn er í vinnuhæð og hiti í gólfi.

Hjónaherbergið er mjög rúmgott með lausum skápum ásamt parket á gólfi.

Barnaherbergið er rúmgott með parket á gólfi og tveimur gluggum.

Baðherbergi er ljósri innréttingu með sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofn og flísum á gólfi.

Þvottaherberg i er í innan íbúðar með flísum á gólfi.

Bílskúrinn er rúmgóður með inngangshurð á hliðinni og björtum glugga. Nýlega var látin ný bílskúrshurð ásamt nýju þaki á skúrinn. Heitt vatn og rafmagn til staðar.

Í kjallara er geymsla íbúðarinnar og sameiginlegt þvottahús.

Nýlegar framkvæmdir samkvæmt seljanda:

Múrviðgerðir á húsinu og tröppum , einnig húsið málað 2026

Farið í sprunguviðgerðir árið 2020.

Nýtt skýli fyrir ruslatunnur byggt.

Nýleg rafmagnstafla.

Þakkantur í suðri og rennur lagaðar 2022.

Tröppur fyrir framan útidyrahurð múraðar sumarið 2020.

Sett var nýtt parket á íbúðina árið 2016.

Eldhús fært til og sett upp snyrtileg eldhúsinnrétting frá Kvikk árið 2016.

Sett upp sér þvottaherbergi í íbúðinni árið 2016.

Stigi sem var í sérgeymslu var tekin og sett hurðarop, til að stækka geymsluna árið 2016.

Sagað svalarop á stofu með nýrri hurð og settar upp suðursavalir á framanvert húsið árið 2016.

Húsið er í göngufæri við skóla, leikskóla, allar helstu verslanir, bókasafn, heilsugæslu og Hamraborg svo sem fyrir almenningssamgöngur.

Sundlaug Kópavogs í götunni ásamt Rútstúni.