Davíðshagi 12 íbúð 105

600 Akureyri

Ásett verð: 45.900.000 kr.

Davíðshagi 12 íbúð 105
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
48,4 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2018
Fermetraverð
948.347 kr.

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur - 466-1600 - gunnar@kaupa.is

Davíðshagi 12 íbúð 105 - Björt og vel skipulögð 2-3ja herbergja íbúð í vönduðu fjölbýli í Hagahverfi - stærð 48,4 m²

Eignin skiptist í forstofu, stofu og eldhús í opnu rými, svefnherbergi, vinnuherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og sérgeymslu í kjallara.

Nánari lýsing:

Forstofan er með harðparketi á gólfi og fataskáp.

Stofan og eldhúsið eru í björtu opnu rými með harðparketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á verönd til suðurs.

Eldhúsið er með ljósri innréttingu og hvítum efri skápum, stæði er fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingunni.

Svefnherbergið er 7,0 m² að stærð með harðparketi á gólfi og fataskáp.

Vinnuherbergið er 4,1 m² að stærð með harðparketi á gólfi, pláss er fyrir 90 cm rúm í herberginu svo hægt að nýta sem annað svefnherbergi.

Baðherbergið er með flísum á gólfi og að hluta til á veggjum, innréttingu með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara, sturtu með glervængjum og vegghengdu wc.

Sérgeymsla er í kjallara.

Annað:

- Íbúðin nýtist sem 3ja herbergja með svefnherbergi og sér vinnuherbergi sem gæti nýst sem svefnherbergi.

- Gólfhiti er í íbúðinni.

- Steypt verönd til suðurs, þaðan er gengið beint út í garð.

- Góð staðsetning í Hagahverfi þar sem stutt er í leikskóla

Nánari upplýsingar veitir:

Gunnar Aðalgeir Arason í síma 618-7325 eða á gunnar@kaupa.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.