Grænaborg 2

190 Vogar

Ásett verð: 79.900.000 kr.

Grænaborg 2
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
137,8 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Byggingarár
2022
Fermetraverð
579.826 kr.

Lýsing

Fasteignaland fasteignasala kynnir glæsilega, vandaða og fallega íbúð á 2 hæð við Grænuborg 2 í Vogum.

Íbúðin er 4 herbergja, 137,8 fm skv fasteignaskrá og er með sérinngangi. Stórar suðursvalir. Laus til afhendingar. Fallegt útsýni.

Nánari upplýsingar veitir:

Hörður Sverrisson, lgf s 777-5209 , 599- 6705, hordur@fasteignaland.is

Fasteignaland fasteignasala, s 599-6700 , fasteignaland@fasteignaland.is

Lýsing:

Rúmgóð forstofa með fataskáp,

Stór stofa og borðstofa með útgengi á útsýnissvalir til suðurs.

Þrjú rúmgóð svefnherbergi með fataskápum

Tvö flísalögð baðherbergi með sturtu, annað innaf hjónaherbergi.

Þvottahús og geymsla.

Baðherbergi:

- Á gólfum og veggjum eru flísar 1m x 2.7m í marmara lit. Loftræstikerfi er á baðherbergi með sér lögnum

- Baðherbergi er með 80 cm dökk grárri innréttingu með hvítum postulínsvaski. Áferðin er með smá glans sem auðveldar þrif.

- Baðherbergið er með 2 skápum þá einn með spegil fyrir ofan og einn langur.

- Í sturtu er hitastýritæki með höfuð og handsturtu.

- Í sturtu er vandað sturtugler með Easy clean áferð til að auðvelda þrif.

- Innbyggður salerniskassi með fallegu sturtuspjaldi, upphengd salerniskál með hæglokandi setu með extra glace húð.

Eldhús

- Eldhúsinnréttingar eru hvítar og eru sérsmíðaðar með glans áferð.

- Höldur eru ekki sýnilegar

- U laga eldhús með eldhúshellu þar sem hægt er að hafa 2-3 stóla við.

- Borðplata er úr Corian & er eldhusvaskur hannaður ofan í plötuna í sama efni. Liturinn er dökkur marmaraáferð.

Eldhústæki eru frá Ormsson og eru eftirfarandi:

- Eldavél – AEG Spanhelluborð m/Viftu. Hægt er að tengja saman tvö eldunarsvæði. Barnalæsing, sjálfvirköryggisslökkvun, tímastillir, hægt er að láta helluborðið og viftuna vinna saman o.s.frv.

- Bakaraofn – AEG Veggofn blástursofn blástursofn m/kjöthitamæli svartur

- Örbylgjuofn - AEG 26 lítra – 900 wött -stál

- Ísskápur Innbyggður- AEG 177,9x54x54,9 með frysti fylgir íbúðum.

- AEG Uppþvottavél fylgir íbúðum - 4 kerfi 3 hitast. – til innbyggingar.

Leik- og grunnskóli eru í næsta nágrenni og er áformað að reisa bæði nýjan leik – og grunnskóla í hverfinu á næstu árum samhliða stækkun hverfisins.

Um er að ræða frábærlega staðsett hverfi sem mun byggjast á næstu árum í fallegu, fjölskylduvænu og rólegu umhverfi við sjávarsíðuna. Hverfið er tengt núverandi byggð og því er stutt í alla helstu þjónustu.

Gert er ráð fyrir að Grænabyggð verði um 1500 manna hverfi og er heildarfjöldi íbúða sem áformað er að reisa á landinu um 800 á 10 ára tímabili. Um er að ræða blandaða byggð, með aðaláherslu á lítil sérbýli.

Uppbygging svæðisins er til 10 ára samkvæmt samkomulagi Grænubyggðar ehf. við Sveitarfélagið Voga. Með því að dreifa byggingartíma yfir 10 ár, er tryggt að uppbygging og stækkun gerist í hægum og öruggum skrefum og að nauðsynleg uppbygging innviða geti átt sér stað samhliða.