Kringlumýri 8

800 Selfoss

Ásett verð: 59.800.000 kr.

Kringlumýri 8
Tegund
Raðhús
Stærð
85,5 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
2003
Fermetraverð
699.415 kr.

Lýsing

Vel skipulagt og fallegt raðhús á góðum stað á Selfossi.

* Byggt 2003

* 3 svefnherbergi

* Fallegur sólpallur og afgirtur garður.

Nánari upplýsingar veita:

Helen Sigurðardóttir Lgf. í síma nr 766-9500 eða helen@palssonfasteignasala.is

[link]

[link]

Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð eignar samkv. HMS er 85,50 m2

Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús, stofu / borðstofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymsluloft.

Forstofa er flísalögð með fataskáp.

Hol er með parket og flísum á gólfi.

Eldhús er flísalagt með U-laga innréttingu með tengi fyrir uppþvottavél, bakarofni, helluborði og viftu.

Stofa / borðstofa er með parket og flísum á gólfi. Útgengt út á sólpall með skjólveggjum til suð-vesturs og þaðan opið í afgirtan garð .

Svefnherbergin eru þrjú með parket á gólfi og fataskápum.

Baðherbergi er flísalagt með upphengdu wc, baðkari með sturtuaðstöðu og innréttingu með handlaug og skúffum.

Þvottahús er flísalagt með tengjum fyrir þvottavél /þurrkara. Þar er lúga upp í geymsluloft.

Bílastæði eru fyrir framan hús.

Stutt í fallegar gönguleiðar og góð staðsetning á Selfossi.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.