Álalind 4

201 Kópavogur

Ásett verð: 112.800.000 kr.

Álalind 4
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
133,3 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
2019
Fermetraverð
846.212 kr.

Lýsing

Kjöreign fasteignasala kynnir Álalind 4: Rúmgóð og falleg íbúð á 5 hæð ásamt stæði í bílageymslu . Eignin skiptist í: forstofu, þrjú svefnherbergi, eldhús, stofu/borðstofu, baðherbergi, þvottahús og stæði í bílageymslu merkt B50. Lofthæðin í íbúðinni er 2,65 cm. Góð sér geymsla er í sameign ásamt sameiginlegri hjólageymslu.

Nánari lýsing eignar:

Anddyri: parket á gólfi með góðum fataskáp.

Eldhús: með vönduðum innréttingum frá HTH, innfelldum ísskáp og frysti. Helluborði, ofni, örbylgjuofni í vinnuhæð, háfi og innfeldri uppþvottavél í innréttingu. Parket á gólfi.

Stofa & borðstofa: eru samliggjandi í björtu og rúmgóðu rými, parket á gólfi. Gengið er út úr stofu út á góðar svalir sem snúa til suðurs.

Baðherbergi: með hvítri innréttingu frá HTH, baðkar & sturtuaðstöðu. Flísar á gólfi og veggjum.

Þvottahús: með góðum hvítum innréttingum og skolvask.

Hjónaherbergi: með parketi á gólfi og rúmgóðum fataskápum.

Svefnherbergi 1: með parketi á gólfi og fataskáp.

Svefnherbergi 2: með parketi á gólfi og fataskáp.

Geymsla: 9,1 fm, staðsett í sameign.

Bílageymsla: stæði merkt 501

Álalind 4 er á einstaklega góðum stað í hjarta Lindahverfis. Í rólegu og vel skipulögðu íbúðahverfi. Í næsta nágrenni eru fallegar göngu- og hjólaleiðir. Leiksvæði og græn svæði sem gera umhverfið fjölskylduvænt og þægilegt.

Stutt er í alla helstu þjónustu; grunnskóla, leikskóla, íþróttasvæði og verslun. Smáralind og Smáratorg eru í örstuttri fjarlægð með öllu sem daglegt líf krefst.

Frábær tenging er við stofnbrautir og almenningssamgöngur, sem gerir staðsetninguna mjög hentuga fyrir bæði fjölskyldur og einstaklinga.