MIÐSTRÆTI 22 - Íbúð 201

740 Neskaupstaður

Ásett verð: 35.500.000 kr.

MIÐSTRÆTI 22 - Íbúð 201
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
89,6 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1945
Fermetraverð
396.205 kr.

Lýsing

BYR fasteignasala kynnir í einkasölu MIÐSTRÆTI 22 ÍBÚÐ 201, 740 Neskaupstaður. Þriggja herbergja íbúð á efri hæð með sér inngangi. Smellið hér fyrir staðsetningu.

Húsið er steypt, byggt árið 1945. Eignin skiptist í íbúð 79.6 m² og geymslu 10 m², samtals 89.6 m² samkvæmt skráningu HMS.

Skipulag íbúðar: Anddyri, hol, eldhús, stofa, tvö herbergi og baðherbergi. Í sameign: Sér geymsla, sameiginlegt þvottahús, gangur. Köld geymsla.

Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 471 2858 |

Nánari lýsing:

Anddyri , flísar á gólfi, tvöfaldur fataskápur (laus og fylgir), gólfhiti er í anddyri.

Hol innan við anddyri, liggur að öðrum rýmum eignarinnar.

Stofa , parket á gólfi.

Eldhús , Brúnás innrétting, helluborð, háfur, ofn, gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu (laus og fylgir), borðkrókur, parket á gólfi.

Frá eldhúsi er hurð að sameiginlegu stigahúsi, þaðan liggur stigi niður í gang að geymslum íbúða, sameiginlegu þvottahúsi.

Herbergi I, parket á gólfi.

Herbergi II, parket á gólfi, fjórfaldur fataskápur (laus og fylgir).

Baðherbergi , flísalagt í hólf og gólf, vaskinnrétting, upphengt salerni, sturtuklefi, gólfhiti er á baðherbergi, gluggi.

Rofar og tenglar hafa verið endurnýjaðir í flestum rýmum.

Sér geymsla er í sameign á neðri hæð. Köld geymsla undir stiga fylgir íbúðinni.

Sameiginlegt þvottahús, vinnuborð með stálvask, rafmagnstafla og hitatúba, málað gólf, guggi.

Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:

Fasteignanúmer 216-9360. Miðstræti 22 Fjarðabyggð.

Stærð: Íbúð 79.6 m². Geymsla 10 m². Samtals 89.6 m².

Brunabótamat: 45.550.000 kr.

Fasteignamat: 25.700.000 kr.

Byggingarár: 1945.

Byggingarefni: Steypa

Eignarhald:

01.0 - Séreign. 01 x Sameign allra 10.2 Brúttó m².

01.2 - Séreign. 01.0103 Geymsla 10 Brúttó m²​​​​​​. 01.0201 Íbúð á hæð 79.6 Brúttó m²​​​​​​.