Völusteinsstræti 14

415 Bolungarvík

Ásett verð: 44.000.000 kr.

Völusteinsstræti 14
Tegund
Einbýlishús
Stærð
156,4 m²
Herbergi
6
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
1
Byggingarár
1962
Fermetraverð
281.330 kr.

Lýsing

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - [link] - kynnir til sölu - Völusteinsstræti 14 Bolungarvík - Einbýlishús á tveimur hæðum, í húsinu eru fimm svefnherbergi, eldhús, baðherbergi, stór stofa og geymslur - Eldhús nýtt 2021 og baðherbergi endurnýjað 2023.

Tveir inngangar eru í húsið, aðalinngangur á efri hæð sunnanverðu en inngangur á neðri hæð norðanmegin af bílastæði er mest nýttur af eigendum í dag.

Komið inn í forstofu neðri hæðar, þar eru flísar á gólfi og hiti í gólfi.

Þvottahús með innréttingu og hillum, steypt gólf.

Tvö svefnherbergi með plastparketi á gólfi, stór fataskápur í öðru herberginu.

Lítil geymsla og kyndiklefi.

Stigi upp á efri hæð.

Eldhús endurnýjað 2021, hvít innrétting, helluborð og ofn, tengi fyrir uppþvottavél, korkur á gólfi.

Forstofa með flísum á gólfi og ágætum fataskáp

Stór stofa og borðstofa með parketi á gólfi, varmadæla til kyndingar í stofu.

Á efsta palli er endurnýjað baðherbergi, flísar á gólfi og veggjum, handklæðaofn, góð walk-in sturta og hvít innrétting.

Hjónaherbergi með parketi á gólfi og tveimur stórum fataskápum.

Annað svefnherbergi með parketi á gólfi og fataskáp.

Þriðja herbergið með plastparketi á gólfi, er nýtt sem sjónvarpsherbergi í dag.

Geymsluloft yfir efri hæð.

Stórt malarborið bílastæði, ágætur garður og sólpallur með skjólveggjum. Köld geymsla/skúr á palli.

Húsið er einangrað með plasti og klætt að utan með Sto múrklæðningu.

Þakjárn var endurnýjað í kringum árið 2000 að sögn fyrri eigenda.