Víðidalur 36

260 Reykjanesbær

Ásett verð: 74.900.000 kr.

Víðidalur 36
Tegund
Raðhús
Stærð
104 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
2020
Fermetraverð
720.192 kr.

Lýsing

Dagbjartur Willardsson löggiltur fasteignasali og RE/MAX kynna Víðidal 36, Innri-Njarðvík í Reykjanesbæ. fnr. 250-8379

Húsið er byggt árið 2020. Húsið er raðhús og er byggingarefni timbur. Birt stærð er 104 fm. Þrju svefnherbergi eru í húsinu og svo er vinnuskúr/geymsla á baklóð sem er ekki skráð inn í fermetrafjöld eignarinnar. Sjá má gólfteikningar af eigninni þar sem ljósmyndir eignarinnar eru.

FÁÐU SENT SÖLUYIRLIT YFIR EIGNINA HÉR.

Nánari lýsing:

Aðkoma: Hellulagt að fyrir framan húsið að inngangi í eignina.

Forstofa: Rúmgóð forstofa með flísum á gólfi og stórum hvítum fataskáp.

Eldhús: Parket á gólfi. Falleg hnotu/svört innrétting. Helluborð með viftu yfir. Bakstursofn í vinnuhæð. Innbyggð uppþvottavél í innréttingu sem og innbyggður kæli/frystiskápur.

Stofa/borðstofa/sjónarpsrými: Myndar eina heild með eldhúsi. Útgengt á baklóð hússins sem snýr í suður. Parket á gólfi.

Baðherbergi: Er flísalagt í hólf og gólf með vandaðri baðinnréttingu með vaski og spegli ásamt upphengdu salerni, handklæðaofni og sturtu með innbyggðum blöndunartækjum.

Svefnherbergi: Eru þrjú og er parket á gólfum þeirra allra. Fastir fataskápar eru í tveimur herbergjanna.

Geymsla: Er við hliðina á baðherbergi.

Lóð: Hellulagt fyrir framan húsið og á stórri baklóð eru timburverandir með skjólveggjum og tyrftur blettur einnig. Stórt útihús sem getur nýst sem geymsla eða vinnurými.

Víðidalur 36 er einstaklega smekklegt og gott raðhús. Þrjú svefnherbergi eru í húsinu og góð nýting á fermetrum. Gott fjölskylduhús með virkilega góðri baklóð sem snýr til suðurs.

Allar nánari upplýsingar veita Dagbjartur Willardsson lgf. í síma 861-7507 eða daddi@remax.is.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. (Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4%)

2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.

3. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. 3.800 kr. af hverju skjali.

4. Lántökugjald lánastofnunar - sjá heimasíður lánastofnanna.

5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900. kr. m.vsk.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.