Furuvellir 20

221 Hafnarfjörður

Ásett verð: 139.900.000 kr.

Furuvellir 20
Tegund
Einbýlishús
Stærð
187,300001525879 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
2004
Fermetraverð
746.930 kr.

Lýsing

Svavar Friðriksson, löggiltur fasteignasali, og Fasteignasalan Torg kynna með stolti: ***MÖGULEIKI Á UPP Í TÖKU Á MINNI EIGN***

Einbýlishús á einni hæð með þremur svefnherbergjum og tvöföldum bílskúr að Furuvöllum 20, Hafnarfirði, Smellið hér fyrir staðsetningu.

Skipulag íbúðar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og sjónvarpsstofu, eldhús, hol, þrjú herbergi, baðherbergi og þvottahús/geymsla, tvöfaldur bílskúr. Húsið er timburhús á einni hæð, byggt árið 2004, 187.3m² að stærð samkvæmt skráningu HMS.

Fáðu söluyfirlit strax með því að smella hér.

ALLAR HELSTU UPPLÝSINGAR VEITIR SVAVAR FRIÐRIKSSON, LGFS, Í SÍMA 623-1717 - SVAVAR@FSTORG.IS

Nánari lýsing eignar:

Anddyri . Stór fataskápur, innangengt er í svefnherbergi frá anddyri.

Alrými . Stofa, borðstofa og sjónvarpsstofa í opnu rými, eldhús er opið við borðstofu.

Frá borðstofu er útgengt út á skjólsæla og fallega timburverönd með skjólveggjum.

Hjónaherbergi , Stór fataskápur, parket á gólfi.

Barnaherbergi . Góður fataskápur, parket á gólfi.

Barnaherbergi II . Flísar á gólfi.

Eldhús . Innréttingin er U-laga, spanhelluborð og loftgleypir, ofn í vinnuhæð. Tengi fyrir uppþvottavél og ísskáp en gert er ráð fyrir tækjunum inn í innréttingu. Tækin fylgja með sé þess óskað. Barborð með glerskápum. Flísar á gólfi.

Baðherbergi. Flísalagt í hólf og gólf, vaskinnrétting með tveimur handlaugum, granít borðplata, upphengt salerni, sturta og hornbaðkar, innfelld tæki, handklæðaofn, gluggi.

Þvottahús. Innrétting með skápum og vinnuborði, vaskur í borði, hækkun fyrir tvær vélar í innréttingu, snúrur og gluggi, útgengt, epoxy á gólfi.

Bílskúr. Tvöfaldur bílskúr, lakkað flot á gólfi. Inntök, grindur, rafmagnstafla, tvær hurðar með rafrænni opnun, gönguhurð út í garð á aftanverðum bílskúr.

Um er að ræða gott timburhús sem er á steyptum grunni byggður árið 2004. Húsið er klætt að utan. Valmaþak, bárujárn á þaki. Timburgluggar og hurðir. Mynstursteypt bílaplan og gangstétt með hitalögn er framan við húsið. Lóð er gróin/frágengin.

Lóð, 726 m² leigulóð í eigu Hafnarfjarðarkaupstaðar.

Umhverfi . Stutt er í alla helstu þjónustu, leik- og grunnskóla, íþróttasvæði, sundlaug og verslun, róleg staðsetning í grónu umhverfi á Völlunum. Botngata.

ALLAR HELSTU UPPLÝSINGAR VEITIR SVAVAR FRIÐRIKSSON, LGFS, Í SÍMA 623-1717 - SVAVAR@FSTORG.IS