Vesturgata 10

625 Ólafsfjörður

Ásett verð: 24.500.000 kr.

Vesturgata 10
Stærð
83,4 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1952
Fermetraverð
293.765 kr.

Lýsing

Betri Stofan Fasteignasala kynnir eignina Vesturgata 10, 625 Ólafsfjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-02, fastanúmer 215-4380 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Vesturgata 10 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 215-4380, birt stærð 83.4 fm.

Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir , í síma 690-7282, tölvupóstur arndis@betristofan.is.

Um er að ræða neðri hæð í tvíbýlishúsi með sérinngangi. Eignin samanstendur af forstofu, eldhúsi, stofu, baðherbergi, tveimur svefnherbergjum, geymslu og sameiginlegu þvottahúsi með efri hæð. Búið er að skipta um glugga og hurðar í eigninni. Neysluvatnslagnir hafa verið endurnýjaðar. Hiti er í stétt framan við eignina.

Forstofa: er flísalögð með góðu fatahengi.

Eldhús: er með Ikea viðarinnréttingum og ljósri borðplötu. Plastparket er á gólfi.

Stofa: er með góðu gluggaplássi og parket á gólfi. Vængjahurð er inn í svefnherbergi.

Baðherbergi: er með flísum á gólfi og í sturtuklefa. Hvít innrétting, vaskur og gólftengt klósett.

Svefnherbergi: eru tvö með parket á gólfi og fataskápum.

Geymsla: er með góðu hilluplássi, opnanlegum glugga og flísum á gólfi.

Þvottahús: er sameignilegt með efri hæð með sérinngangi út í garð. Mjög rúmgott með skápum og flísum á gólfi.