Laugavegur 143 301
105 Reykjavík
Ásett verð: 95.900.000 kr.

- Tegund
- Íbúð í fjölbýli
- Stærð
- 108,3 m²
- Herbergi
- 4
- Svefnherbergi
- 3
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 1930
- Fermetraverð
- 885.503 kr.
Lýsing
Jason Kristinn Ólafsson og Betri Stofan fasteignasala kynnir: Laugaveg 143. Einstaklega vönduð og mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð á 3. hæð ásamt herbergi í kjallara. Stæði í bakgarði fylgir eigninni. Hægt er að kaupa allar þrjár íbúðirnar saman og eignast því allt húsið. Laugavegur 143 samanstendur af þremur fastanúmerum. Húsið var reist í kringum 1930 og hefur fengið gott viðhald í gegnum árin.
Á árunum 2012-2024 var húsið allt tekið í gegn, lagnir, þak, gluggar, lóð og þá vor íbúðirnar endurgerðar. Endurbætur voru unnar í samvinnu við Minjastofnun Íslands. Aðalinngangur er frá Laugavegi og einnig er bakinngangur hjá bílastæðum.
Íbúðin skiptist í anddyri/hol, stofu, eldhús, baðherbergi og 2 svefnherbergi. Íbúðinni fylgir 24,6 fm herbergi í kjallara sem er með aðgengi að baðherbergi.
3,2 fm sérgeymsla er í kjallara og aðgangur að sameiginlegu þvottahúsi.
Íbúðin er um 80,5 fermetrar og auk herbergis og geymslu er hún samtals 108,3 fm.
Íbúðin:
Forstofa : Forstofa er með flotuðu gólfi. Góð lofthæð er í íbúðinni.
Eldhús : Innrétting er ljós, uppþvottavél. Arinn í eldhúsinu. Flot á gólfi og gluggi til norðurs.
Stofa : rúmgóð stofa með flotuðu gólfi, gluggi sem snýr út á Laugaveg. Fjórir gluggar snúa til suðurs.
Tvö svefnherbergi með flotuðu gólfi: Fataskápar eru í stærra svefnherberginu.
Baðherbergi : Flísalagt baðherbergi með sturtu. Gluggi til norðurs. Salerni er upphengt.
Þvottahús : Er sameiginlegt í kjallara hússins. Útgengi í baklóð þar sem sér bílastæði eru.
Aukaherbergi , rúmgott 24,6 fermetrar. Sameiginlegt baðherbergi með sturtu er í sameign.
Geymsla : Sérgeymsla að stærðinni 3,2 fm er í sameign hússins.
Húsið: Glæsilegt mikið endurnýjað, þak, gluggar og ytra byrði. Stutt er í alla þjónustu, sundlaug, samgöngur og eignin er mjög miðsvæðis.
Lóðin er snyrtileg með einkabílastæðum.
Allar nánari upplýsingar veitir: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 og í netfangið jason@betristofan.is