Hvítárskógur 8

320 Reykholt í Borgarfirði

Hvítárskógur 8
Tegund
Sumarhús
Stærð
404,6 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Byggingarár
2008

Lýsing

Fasteignasalan TORG kynnir: Tvær eignir í landi Húsfells, á tveimur samliggjandi lóðum, Hvítárskógur 8 merkt F2296330 og Norðurskógur 1 merkt F2334629. Alls eru lóðirnar samanlagt 3.117fm

Alls er rými fyrir um 14-16 manns í gistingu. Heimkeyrsla er hellulögð, stór verönd er utan um aðalhúsið, og einnig utan um frístundarhúsið. Heitapottur er á verönd. Samtals eru bæði húsin skráð u.þ.b. 404,6 fm. Aðalhúsið skráð 149,6fm og frístundarhúsið um það bil 225 fm. Aðalhúsið skiptist í jarðhæð, skráð 120 fm og svefnloft skráð 44,6 fm., húsið er i dag nýlega endurnýjað og málað, vantar hurðir og innréttingu í eldhúsi og skápa. Gólfhitakerfi er á neðri hæð, rafmagnsofnar eru í herbergjum efri hæðar. Frístundarhúsið hefur mikla lofthæð, pool borð, þythokkí borð, borðtennisborð, fótboltaspil og 3 píluspjöld. Stórt baðherbergi er í aukahúsinu með sturtuklefa. Sér herbergi er á móti baðherberginu þar eru 2 rúm, annað einbreitt og hitt tvíbreitt ásamt setustofu. Geymsluloft er yfir hluta geymslunnar og er stigi upp á geymsluloftið. Eignaskipti möguleg.

Allar nánari upplýsingar gefur Þorlákur Ómar Einarsson lögg.fasteignasali í síma 820-2399 eða netfang thorlakur@fstorg.is

.