Berjavellir 1

221 Hafnarfjörður

Ásett verð: 72.900.000 kr.

Berjavellir 1
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
100,2 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2006
Fermetraverð
727.545 kr.

Lýsing

Hraunhamar fasteignasala kynnir: Rúmgóða og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð á 2. hæð með bílastæði í lokuðum bílakjallara í lyftuhúsi við Berjavelli 1 framarlega á Völlunum í Hafnarfirði. Öll helsta þjónusta í næsta nágrenni, verslanir, skóli og leikskóli, líkamsrækt og sundlaug. Eignin getur verið laus fljótlega.

Íbúðin er skráð 100,2 fm skv. HMS en þar af er 7,4 fm geymsla.

- Rúmgóð íbúð

- Stæði í bílageymslu

- Sér þvottahús innan íbúðar

Nánari lýsing eignar:

Rúmgóð forstofa með góðu skápaplássi.

Opin björt stofa og borðstofa . Stórir gluggar.

Útgengt á 14 fm svalir frá stofu/eldhúsi.

Gott eldhús með eyju sem hægt er að sitja við. Mikið skápapláss. Granít á borðum. Flísar á gólfi.

Hjónaherbergi með góðu skápaplássi.

Svefnherbergi með fataskáp.

Rúmgott baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Innrétting með handlaug og stein á borði, upphengt salerni, baðkar með sturtuaðstöðu og handklæðaofn. Hiti í gólfi.

Sér þvottahús með flísum á gólfi, innrétting og skolvaskur.

Sér geymsla í sameign.

Bílastæði í lokuðum bílakjallara. Rafhleðslustöð fyrir rafbíl fylgir.

Gólefni eru parket og flísar.

Snyrtileg sameign, sameiginleg hjóla og vagnageymsla. Í bílakjallaranum er sér bílaþvottastæði.

Frábær staðsetning þar sem öll helsta þjónusta er í göngufæri.

Nánari upplýsingar veitir Glódís Helgadóttir löggiltur fasteignasali í s. 659-0510 eða á netfangið glodis@hraunhamar.is

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi

Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.

Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is

Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.