Kleppsvegur 56
104 Reykjavík
Ásett verð: 67.900.000 kr.

- Tegund
- Íbúð í fjölbýli
- Stærð
- 84,7 m²
- Herbergi
- 4
- Svefnherbergi
- 3
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 1958
- Fermetraverð
- 801.653 kr.
Lýsing
Aðalsteinn Jón Bergdal lgf. og Trausti fasteignasala kynna í einkasölu skemmtilega og vel skipulagða 4ra herbergja íbúð á 1. hæð í góðu fjölbýli miðsvæðis í Reykjavík að Kleppsvegi 56. Húsið hefur hlotið gott viðhald gegnum árin og var nýlega endursteinað, farið yfir glugga og skipt um sem þurfti og skólp- og drenlagnir endurnýjaðar.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign.
Eignin er skráð samkvæmt HMS 84,7 fm og þar af er geymsla skráð 6,4 fm.
Nánari lýsing:
Forstofugangur/hol með parket á gólfi.
Stofa/borðstofa er rúmgóð og björt með parket á gólfi.
Eldhús með snyrtilegri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél, borðkrók og parket á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með parket á gólfi og góðan fataskáp. Útgengt á suðursvalir.
Svefnherbergi II með parket á gólfi.
Svefnherbergi III með parket á gólfi.
Baðherbergi er með flotað gólf og flísar á vegg. Baðkar með sturtu, innrétting og gluggi.
Þvottahús/geymsla innaf eldhúsi með málað gólf.
Sérgeymsla íbúðar í sameign í kjallara.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign í kjallara.
Falleg íbúð í góðu vel viðhöldnu fjölbýli miðsvæðis í Reykjavík. Stutt í bæði leik- og grunnskóla og alla þjónustu. Laugardalurinn og allt það skemmtilega sem hann hefur uppá að bjóða í göngufæri.
Nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is