Víkurvegur 2

806 Selfoss

Ásett verð: 75.000.000 kr.

Víkurvegur 2
Tegund
Sumarhús
Stærð
112 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1950
Fermetraverð
669.643 kr.

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

Eignamiðlun kynnir:

Reisulegt sumarhús við Víkurveg 2, Þingvöllum, Bláskógabyggð. Eignin stendur á gróinni lóð með hávöxnum trjám við opið svæði nærri Þingvallavatni með stórkostlegu útsýni yfir vatnið og fjallasýn. Timburverönd umlykur húsið auk þess er skjólgóð timburverönd/grillverönd við húsið bakatil. Lóðin er leigulóð 5.100,0 fermetrar að stærð og er í eigu Ríkissjóðs Íslands. Aðgengi að húsinu er mjög gott frá bílaplani að framanverðu og til hliðar við húsið.

Húsið er timburhús á einni hæð og stærð þess skv. Fasteignaskrá Íslands er 112 fermetrar. Sumarhúsið var endurbyggt árið 1990 en gamla sumarhúsið var rifið og nýtt hús byggt á sama grunni.

Húsið er afar vel byggt hús frá fyrstu gerð, reisulegt og stílhreint.

Húsið skiptist í forstofu, eldhús, tvær rúmgóðar stofur, þrjú svefnherbergi og svefnloft, baðherbergi með sturtuklefa. Útgengt er út á verönd bæði úr eldhúsi og úr stofu.

Gólefni eru flísar og parket á alrými og svefnherbergjum en dúkur á gólfi á baðherbergi. Geymsluskúr á verönd eru tæpir 10fm.

Í húsinu eru rafmagnsofnar og hitakútur fyrir heitt neysluvatn. Rotþró er við húsið. Við húsið er borhola en borað var fyrir köldu vatni.

Svæðið er á lista Heimsminjaskrár UNESCO.

Lóðin er leigulóð í eigu Ríkissjóðs Íslands.

Nánari upplýsingar veitir :

Alfreð Valencia löggiltur fasteignasali í síma 776-2150 eða alfred@eignamidlun.is

***

Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook